Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Side 118
116
nefna þá Eggert Jónsson, stud. jur., frá Vöku, og Guðmund Magnús-
son, stud. polyt., frá róttækum.
í stjórn ráðsins voru kosnir á fundi þess 4. nóv. 1946: Geir Hall-
grímsson, formaður, Hermann Pálsson, ritari, og Skúli Guðmunds-
son, gjaldkeri. Á fundi ráðsins 12. nóv. sagði ritari þess af sér vegna
ágreinings út af ræðumannskjöri 1. des. og var ný stjóm stúdenta-
ráðs kosin á fundi þess 16. nóv., skipuð sem hin fyrri, að því undan-
skildu, að Ingi R. Helgason varð ritari. Sat sú stjóm til 27. ágúst
1947, að Ásgeir Pétursson var kosinn gjaldkeri í stað Skúla Guð-
mundssonar, sem fór af landi burt.
Fundir.
Ráðið hélt 34 fundi og voru 190 mál á dagskrá. Var sú nýbreytni
tekin upp, að reglulegir vikulegir fundir vom haldnir á miðviku-
dögum og vélrituð dagskrá látin mönnum í té fyrir hvern fund.
Almennir stúdentafundir hafa þrír verið haldnir:
1. Samkvæmt áskorun 23 háskólastúdenta var almennur stúd-
entafundur haldinn 20. nóv. um val ræðumanna 1. des.
2. Hinn 18. marz 1947 var haldinn almennur umræðufundur um:
Er sósíalismi framkvæmanlegur á lýðræðisgmndvelli? Tóku þeir
háskólakennaramir Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Bjömsson þátt í
umræðunum. Var fundur þessi byrjun á umræðufundahaldi, þar sem
kennarar og nemendur ræddu vandamál líðandi stundar. Þar sem
fundurinn var haldinn seint á starfstímabili ráðsins, fellur það í
hlut næsta ráðs að halda starfsemi þessari áfram.
3. Hinn 15. okt. 1947 var fundur haldinn um skíðaskálabyggingu
og lagamálið.
Hátíðahöld.
1. Fyrsti desember. Eins og áður var fyrsta viðfangsefni stúd-
entaráðs að sjá um hátíðahöldin 1. desember. Urðu allharðar deilur,
fyrst um ræðumannakjör í hátíðasalinn, síðar um útgáfu 1. des-
emberblaðsins.
Þrátt fyrir þetta þóttu hátíðahöldin takast mjög vel, sé ein blaða-
frásögn undanskilin. Skrúðganga var farin frá Háskólanum að Al-
þingishúsinu, þar sem próf. Alexander Jóhannesson talaði af svölum
hússins. Síðan var gengið í kirkju. Bjöm Magnússon dósent flutti
ræðu, en Sigurbjörn Einarsson dósent þjónaði fyrir altari. Klukkan 4
hófst svo samkoma í hátíðasal Háskólans. Komu þar fram færustu
tónlistarmenn, og þeir Sigurður Bjamason alþm. og Gylfi Þ. Gíslason
próf. fluttu ræður. Um kvöldið var hóf að Hótel Borg. Var þar og
vandað til dagskrár. Flutti próf. Ásmundur Guðmundsson þar há-