Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Blaðsíða 121
119
komulagi í framtíðinni við Finnland og Danmörku, þannig að stúd-
entaráðið greiði kostnað af dvöl stúdenta hér, en fái endurgreiðslu
með því móti, að stúdentasamtökin þar greiði samsvarandi af kostn-
aði íslenzkra námsmanna erlendis. Sjálfsagt er að gera slíka samn-
inga við sem flest lönd.
Stúdentagarðarnir.
1. Stúdentaráði barst í nóv. s.l. áskorun frá Garðbúum um end-
urskoðun laga og reglugerða fyrir garðana. Flutti ráðið áskorun
þessa áfram til Garðstjórnar og kaus síðan 15. jan. 5 manna nefnd
stúdenta til að fara yfir gildandi fyrirmæli og gera tillögu til úr-
bóta. Nefndin skilaði áliti á stúdentaráðsfundi 5. febr. og sendi ráð-
ið síðan háskólaráði tillögu um breytta skipulagsskrá, en fulltrúar
stúdentaráðs í Garðstjórn báru upp tillögurnar fyrir næsta Garð-
stjómarfund. Langur tími leið, áður en Garðstjóm sæi sér fært að
taka þær til umræðu. Þegar það varð, var samþykkt að bíða eftir
afgreiðslu háskólaráðs á skipulagsskránni. Gylfa Þ. Gíslasyni próf.
hafði verið falið að athuga tillögurnar í háskólaráði og átti að leggja
síðan álit sitt fyrir það. Fór stúdentaráð fram á það við próf. Gylfa,
að málinu væri hraðað, en lítið mun hafa verið um fundahöld í
háskólaráði og málið því ekki komið lengra.
2. Þá vakti stúdentaráð athygli Garðstjómar 20. nóv. 1946 á
því, hvort ekki bæri að undirbúa aukningu á húsakosti Garðanna,
þar sem tvísett væri í mörg eins manns herbergi og frekar líkindi
til, að umsóknum um garðvist færi fjölgandi.
3. Með bréfi 30. jan. 1947 benti stúdentaráð á, hve mikil þörf
væri húsnæðis fyrir félagslíf stúdenta og benti á salarkynni Gamla-
Garðs sem úrlausn þess vanda. Var í því sambandi minnzt á nauð-
syn þess að byggja sérinngang í salarkynni þessi. Áréttað var þetta
bæði í persónulegum samtölum og bréfi 7. marz 1947, þar sem form-
leg ályktun stúdentaráðs héraðlútandi var send Garðstjóm. Svaraði
formaður stjómarinnar munnlega og kvað fjárhag svo erfiðan, að
ekki væri mögulegt að hefja framkvæmdir strax, en teikningar
skyldu verða gerðar og kostnaðaráætlun, sem stúdentaráði yrði svo
sendar til umsagnar.
4. í sambandi við framansagt fór stúdentaráð fram á það, að
skilyrði til hljómleikahalds yrðu sköpuð á Gamla-Garði með því að
kaupa húsgögn í salinn og flygil. Bauðst stúdentaráð til að vinna
að útvegun flygils, ef Garðstjóm legði fram fé. Varð það að sam-
komulagi. Ennfremur hefur stúdentaráð fengið samþykki Skemmti-
félags Garðbúa um 5000 kr. framlag í þessu skyni.
5. Stúdentaráð fór fram á, að Upplýsingaskrifstofa stúdenta fengi