Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 125
123
það væri ekki hægt. Var þá reynt að fá flygil hér innanlands og
m. a. auglýst eftir slíku hljóðfæri. Voru alls um 10 tilboð athuguð,
en ekkert reyndist fullnægjandi. Hafði ráðið sérþekkingu þeirra Rögn-
valds Sigurjónssonar og Pálmars ísólfssonar við að styðjast. Var nú
aftur reynt að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir flygil frá
Tékkó-Slóvakíu eða Frakklandi, og eru líkur til, að það fáist. Hafa
þegar verið gerðar ráðstafanir til að fá Förster koncertflygil frá
Tékkóslóvakíu, ef leyfið fæst.
3. Stofnun hljómsveitar. Ráðið ákvað að stofna hljómsveit s.l.
vor og auglýsti eftir þátttöku, en enginn gaf sig fram. Nú í haust
var málið tekið upp aftur og er hægt að tilkynna, að f jögra manna
hljómsveit er stofnuð. Keypti stúdentaráð trommusamstæðu á 3000
kr., til þess að skapa hljómsveitinni starfsskilyrði.
4. Stofnun stúdentakórs samþykkti ráðið að gangast fyrir og
auglýsti eftir þátttöku. Aðeins örfáir gáfu sig fram s.l. vor. 1 haust
gekkst svo stúdentaráð fyrir því, að fjórir stúdentar æfðu söng,
og stofnuðu með sér kvartett. Ennfremur hefur ráðið verið á hnot-
skóg eftir söngstjóra til að taka að sér stjórn kórsins.
Bókamálin.
Stúdentaráð samþykkti 13. des. áskorun til háskólaráðs um að
koma á fót bókaútgáfu og bókaverzlun. Kvað rektor háskólaráð
hafa haft mál þetta til athugunar, m. a. stofnun prentsmiðju, en
hér væri um mál að ræða, sem þyrfti mikillar athugunar við. Stúd-
entaráð skrifaði síðan öllum deildarfélögum um þetta mál, svo að
þau fylgdust með því og gætu ef til vill flýtt framkvæmd þess.
Formaður ráðsins kallaði og saman bókanefndir frá öllum deild-
um til að ræða mál þetta og skortinn á kennslubókum. Var ályktun
fundarins send háskólaráði. Var á þeim fundi einnig ákveðið, að
bókanefndirnar í hverri deild skyldu semja skrá yfir þær kennslu-
bækur, sem skorti, en stúdentaráð ætti síðan að reyna að útvega
þær. Var þetta og framkvæmt og bætti það nokkuð úr skák.
Eins og fyrr greinir, mun hinn nýi starfsmaður, sem háskólanum
og stúdentaráði væntanlega bætist, starfa að bókamálum stúdenta.
Lagamálið.
Hinn 12. febr. var nefnd kosin til að endurskoða lög stúdentaráðs,
skipuð fulltrúum frá öllum deildum, pólitísku félögunum og stúd-
entaráði. Hinn 1. apríl skilaði nefndin áliti, og hafði klofnað í
tvennt. Þegar málið var rætt í stúdentaráði, kom þriðja frumvarpið
til breytinga á stúdentaráðslögunum fram. öll þessi þrjú frumvörp
voru gerólík, og var nú almennur stúdentafundur boðaður, en svo