Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Blaðsíða 117
115
Framkvæmdastjórar hafa starfað tveir fyrir þetta starfstímabil.
Þórður Guðjohnsen, stud. jur., var ráðinn til eins árs frá 1. september
1960. Gegndi hann því fram til 1. ágúst 1961, er hann var leystur frá
því samkvæmt eigin ósk. Vann hann starf sitt af alkunnri elju og
áhuga. Stúdentaráð réð síðan Áslaugu Ottesen til starfsins til bráða-
birgða frá 15. ágúst og síðan endanlega frá 1. október, er starfið hafði
verið auglýst laust til umsóknar og ein umsókn borizt. Hefur hún
gegnt starfinu af áhuga og samvizkusemi. Laun framkvæmdastjóra
SHÍ eru nú kr. 3500,00 á mánuði miðað við fjögurra tíma vinnu dag
hvern.
Almennir stúdentafundir.
Almennir stúdentafundir voru haldnir sex.
1. Hátíöanefnd, stúdenta og ritstjórn Stúdentablaös 1960.
Samkv. 15. gr. laga var haldinn almennur stúdentafundur 7. nóv-
ember 1960 til að kjósa hátíðanefnd til að undirbúa hátíðahöldin 1. des-
ember og ritstjórn Stúdentablaðs, sem út komi sama dag. Er gerð grein
fyrir hátíðahöldunum 1. desember og undirbúningi þeirra á öðrum
stað. Fundurinn var f jölmennur og urðu á honum nokkrar deilur um
kosningarétt. Fundarstjóri var Ólafur Egilsson, stud. jur., og fundar-
ritari Örn Bjarnason, stud. med.
2. Frumvarp til laga um Lánasjóö íslenzkra námsmanna, sem þá
lá fyrir Alþingi, var tekið fyrir á almennum fundi háskólastúdenta 14.
febrúar. Komu fram á fundinum eftirfarandi tillögur, sem voru sam-
þykktar samhljóða:
Almennur stúdentafundur haldinn í Háskóla íslands þann 14. febr-
úar 1961 lýsir ánægju sinni yfir þeim aukna stuðningi við háskóla-
stúdenta, sem felst í framkomnu lagafrumvarpi um Lánasjóð íslenzkra
námsmanna. Telur fundurinn, að þar sé bætt talsvert úr brýnum
þörfum.
Fundurinn leggur áherzlu á þýðingu þess, að stuðningur við stúd-
enta verði jafnan við það miðaður, að nám þeirra þurfi ekki að dragast
á langinn vegna f járhagsörðugleika.
Ennf remur:
Almennur stúdentafundur haldinn í Háskóla íslands þann 14. febr-
úar 1961, lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að óeðlileg sé sú skipan, sem
tíðkazt hefur á undanförnum árum, að Menntamálaráð annist úthlutun
þess fjár, sem veitt er íslenzkum námsmönnum erlendis.
Einkum telur fundurinn mikilsvert, að námsmönnum sjálfum gefist
kostur á að eiga hlut að skiptingu fjárins, þar sem fáir eða engir hafa
betri aðstöðu til að gera sér grein fyrir, hvar þörfin er brýnust.