Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Blaðsíða 79
77
skólans hefir aukizt að öðru leyti, m. a. hefir verið stofnað til
kennslu í lyfjafræði lyfsala við háskólann, og aðstaða til kennslu
í eðlisfræði og efnafræði hefir stórum batnað. Ráðizt hefir verið
í meiri byggingarframkvæmdir en dæmi eru til síðan byggingu
háskólahússins lauk, og háskólahappdrættið, sem stendur fjár-
hagslegan straum af þeim framkvæmdum flestum, hefir eflzt
mjög þessi árin.
Ekki verður svo skilizt við þetta mál, að ekki sé minnzt þess
mikla þáttar, sem heimili dr. Þorkels átti í rekstorsstarfi hans.
Fjölda margir menn, bæði innlendir og erlendir, nutu mikillar
gestrisni á hinu vistlega og menningarlega heimili rektorshjón-
anna, frú Hrefnu Bergsdóttur og dr. Þorkels, en þau hjón voru
frábærir gestgjafar. Minningarnar um glaðværð góðra stunda á
heimili þeirra munu seint fyrnast í hugum okkar vina þeirra.
IV.
Dr. Þorkell Jóhannesson verður öllum þeim minnisstæður, sem
af honum höfðu kynni, og dómar manna um mannkosti hans og
persónuleika eru mjög á einn veg. Hann var mikill drengskapar-
maður, jafnlyndur og góðlyndur, en gat verið fastur fyrir, við
hvern sem var að etja. Yfir svip hans hvíldi rósemi og jafnvægi
og einstök heiðríkja. Aldrei líður mér úr minni handtakið trausta
og hið hlýja bros hans. Góðgirni hans var við brugðið, og aldrei
heyrði ég hann hallmæla manni, en hitt var ríkt í honum að
bera blak af mönnum og finna þeim nokkuð til málsbóta. Hann
var æðrulaus og óvílinn, og allt málskraf var honum lítt að skapi.
Að dr. Þorkeli Jóhannessyni er mikill sjónarsviptir hér í há-
skólanum, og öllum er hann harmdauði. Líf hans og lát fyrir
aldur fram er oss öllum brýning um að vinna íslenzkum vísind-
um það, er vér framast megnum, og að hlynna að og vinna þeirri
stofnun, sem honum var svo kær, Háskóla íslands.
Háskóli íslands þakkar ómetanleg störf rektors síns og bless-
ar minningu hans.
Ármann Snœvarr.