Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1962, Side 75
57
Aldrei hefir þessu verið lýst af svo snillilegum skilningi sem
í lítilli sögu eftir Jón Trausta: Þegar eg var á freigátunni.
Maðurinn, sem er látinn segja söguna, fær sér flutning milli
tveggja hafna með Hrólfi gamla, sem er að fara í útilegu á
fjögra manna fari. Þetta er snemma vors, rosaveður og þrút-
inn sjór. Hrólfur stýrir fleytu sinni, sem titrar eins og lauf-
blað á öldunum, af þeirri list, að sögumaður horfir á það hug-
fanginn. En allt í einu heyrir hann gamla manninn segja stund-
ar hátt upp úr eins manns hljóði: „Þegai eg var á freigát-
unni!“ Hann fer að hlusta, og Hrólfur heldur áfram að tala
við sjálfan sig. Fyrst er eins og hann sé að rifja eitthvað upp,
sem hafi gerzt fyrir löngu: hann hafi bjargað stóru herskipi,
sem hafði villzt af leið, með því að fara um borð, taka sjálf-
ur við stjórn, skipa fyrir, heimta blinda hlýðni, — stýra úr
skerjakreppunni út á rúmsjó og sýna þar, hversu djarft mætti
sigla einni freigátu, ef rétt væri á haldið. En smám saman
er eins og þessi endurminning og líðandi stund renni saman.
Hrólfur er nú á freigátunni, ekki á bátskelinni sinni.
Sögumaður spyr einn hásetann í hljóði: „Hefur hann nokk-
urn tíma verið á herskipi?" Og hásetinn hvíslar aftur: „Biddu
fyrir þér! Aldrei á ævi sinni. Þetta rugl hefir komið yfir hann
seinustu árin, eftir að hann missti einkason sinn, mesta efnis-
mann, í sjóinn.“
Nú fer farþeganum ekki að lítast á blikuna. Hann er á þessu
bátkríli í stórsjó, og maðurinn, sem heldur um stýristaumana
og hefir líf hans í hendi sér, er ekki með öllum mjalla. Ekki
þarf annað en Hrólfur gleymi því eitt andartak, hvað hann
er að gera og má gera. Þá er úti um allt. Sögumanni rennur
kalt vatn milli skinns og hörunds.
En hásetinn hughreystir hann. Hann þekkir Hrólf og hefir
margsinnis heyrt hann tauta svona. Karlinn er alveg jafnör-
uggur við stýrið, þó að hann sé að bulla þetta. Allir keppast
um að komast í skiprúm hjá honum, allir treysta gamla Hrólfi.
Og þetta reynist rétt. Eftir fífldjarfa brimlendingu skilar Hrólf-
ur farþeganum heilum í höfn, — að vísu holdvotum, eftir að
kamburinn á einni holskeflunni hefir slett gusu yfir bátinn.
8