Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1962, Side 76
58
Lesandi sögunnar skilur að lokum — eða honum er ætlað
að skilja, — að Hrólfur gamli siglir ekki svona djarft og
stýrir svona vel þrátt fyrir vökudraum sinn um freigátuna,
heldur meðfram vegna hans. Freigátan er honum ekki ein-
ungis huggun og uppbót fyrir sorgir og vonbrigði. Hún gerir
siglinguna honum samboðna. Hugarburður hans, að hann sé
að bjarga stóru skipi, stýra dýrum knerri, sem sé fær í allan
sjó, ef hann er við stjórn, leysir alla krafta hans úr læðingi,
magnar hann. Þetta er að vísu sigling á þröminni milli hins
færa og ófæra, þar sem hvorki má vera án þeirrar eggjunar
og áræðis, sem draumurinn veitir, né gleyma því, hvað litlum
bát sé bjóðandi. En — hún lánast.
Hvorir voru vitrari i raun og veru, Tómas Sæmundsson eða
Bjarni amtmaður, Jón Sigurðsson eða hinir konungkjörnu?
Varkáru og íhaldssömu mennirnir sáu tvímælalaust betur,
hvað skynsamlegt virtist, eins og á stóð, að heimta af og til
handa þeim 50—60 þúsund hræðum, sem í landinu voru. En
samt voru það mennirnir, sem þorðu að „hefja hugann hátt“
og þeirra fylgismenn, sem áttu að erfa landið. Það voru þeir,
sem smám saman stöppuðu stálinu í þjóðina. Að sjálfsögðu
höfum við fengið og eigum eftir að fá einhverjar slettur af
holskeflum, af því að við i svipinn vitum ekki nógu nákvæm-
lega, hvað óhætt sé að sigla djarft á fjögra manna fari. Skylt
er að gæta allra nauðsynlegrar varúðar. En hamingjan varð-
veiti okkur, ef við verðum nokkurn tíma svo skynsamir, að
við glötum alveg draumnum um freigátuna!
Þegar farið var á síðustu áratugum nítjándu aldar að ræða
af alvöru um stofnun háskóla á Islandi, stóð sumum þing-
mönnum stuggur af þessu stóra heiti: háskóli, universitas. Þeir
vildu heldur annað nafn, sem léti minna yfir sér, t. a. m. lands-
skóli. En háskólanafnið varð ofan á. Þótt þetta nafn yrði fyrir
nokkuru aðkasti framan af og ekki stofnuninni til eintómra
vinsælda, var það í fullu samræmi við bæði sögulegar erfðir
og anda þjóðlífsins. Enda voru aðfinnslurnar sprottnar af ýmis-
legum misskilningi.
Háskóli er ekki heiti, sem felur i sér fulla skilgreiningu,