Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1962, Síða 77
59
afmörkun. Það er heiti, sem markar stefnu, bendir fram á leið.
Ýmsir háskólar, sem síðan hafa orðið voldugar stofnanir, hafa
byrjað enn smærra en Háskóli Islands. Vöxtur þeirra hefir
jafnvel verið svo hægfara, að mæla verður hann fremur í öld-
um en árum. Hins vegar er enginn háskóli veraldar svo full-
kominn, að hann standi ekki til einhverra bóta, að hann sé
algjörlega og á öllum sviðum samboðinn heitinu universitas.
Fjarstæðan um Háskóla Islands fyrir 50 árum og enn í dag
var og er ekki smæð hans sjálfs, heldur fámenni þeirrar þjóð-
ar, sem hann hefir að bakhjarli. En hvenær sem við ætlum að
setja slíka smámuni fyrir okkur, er hollt að minnast þess,
þegar Tómas Sæmundsson skipulagði Austurvöll sumarið 1834,
eins og þá var umhorfs í Reykjavík, og þorði fyrstur manna
að nefna háskóla á Islandi.
Það þykir stundum hættulegt að hanga í orðum. En í orð-
inu háskóli, í þeirri hugsjón, sem þetta orð táknar, eigum við
að hanga, — ekki sem vegsemd, heldur sem vanda, sem skyldu.
Jón Sigurðsson sagði um stjórnarskrána frá 1874, að honum
fyndist „hér vera fengin trappa til að standa á“. Um fram-
tíðina vitum við það eitt, að hún er að því leyti, sem við ráð-
um nokkuru um hana, komin undir trúmennsku samtíðarinnar
við sitt hlutverk, undir trúmennsku sjálfra vor. Svo framar-
lega sem hver stúdent, hver kennari lifir, starfar og hugsar
sífellt með vakandi auga á því stefnumarki, sem heitið háskóli
bendir til, — þá og því aðeins verður þessi stofnun á hverjum
tíma sú trappa, sem svíkur ekki, þegar á að stíga næsta spor-
ið upp á við.
Er dr. Sigurður Nordal hafði lokið ræðu sinni, söng Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari lögin Útlaginn eftir Karl O.
Runólfsson, Siglum á sæinn eftir dr. Hallgrím Helgason og Til
skýsins eftir Emil Thoroddsen. Undirleik annaðist Fritz Weiss-
happel.
Þá hófst lýsing á kjöri heiðursdoktora í tilefni af hálfrar
aldar afmæli Háskóla Islands. Hófst hún með því, að háskóla-
rektor, prófessor Ármann Snævarr, mælti þessi orð: