Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Blaðsíða 36
Vestmannaeyjum. Fræðasetrin eru faglega sjálfstæðar einingar sem eru
skipulagðar undir merkjum Stofnunar fræðasetra Háskóla Islands. Markmið
fræðasetranna er að skapa aðstöðu tit rannsókna. auka möguteika almennings til
menntunar og styrkja tengst háskólans við atvinnu- og þjóðlíf. Einnig býður
Háskóti íslands upp á fjarnám í ýmsum greinum. auk þess sem kennsta í
íþróttafræðum á Menntavísindasviði fer fram á Laugarvatni og starfrækt er
Rannsóknamiðstöð í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi. Loks á Háskóli íslands í
margvíslegu samstarfi við aðra innlenda háskóta og rannsóknastofnanir á
tandsbyggðinni, s.s. Landbúnaðarháskóla íslands á Hvanneyri, Háskótann á
Akureyri. Hólaskóla - Háskólann á Hólum. Náttúrurannsóknastöðina á Mývatni,
Sjávarrannsóknarsetrið á Ólafsfirði. Seiasetrið á Hvammstanga o.fl.
Heimsóknir
Palai Lama, friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsótti Háskóla
íslands
Dalai Lama. friðarverðlaunahafi Nóbels. heimsótti Háskóla ístands í byrjun júní
og flutti erindi í Hátíðasal í boði rektors og Hugvísindasviðs. Kristín Ingótfsdóttir
rektor bauð hinn tigna gest velkominn og að erindi hans toknu átti hann samræðu
við þrjá kennara háskólans, þau Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði, Pál Skúta-
son, prófessor í heimspeki og fyrrverandi háskótarektor, og Sigríði Þorgeirsdóttur,
prófessor í heimspeki. Samkomunni stýrði Ástráður Eysteinsson, prófessor í al-
mennri bókmenntafræði og forseti Hugvísindasviðs. Mikill fjöldi stúdenta, kenn-
ara og starfsmanna Háskóta Islands sótti samkomuna og var fullt út úr dyrum.
Rajendra K. Pachauri, handhafi friðarverðlauna Nóbels, flutti
opinn fyrirlestur við Háskóla íslands
Rajendra K. Pachauri, einn helsti forystumaður veraldar í umræðum um tofts-
lagsbreytingar, hélt opinn fyrirlestur í boði forseta ístands og í samvinnu við Há-
skóla íslands í september. Fyrirtesturinn bar heitið „Can Science Determine the
Politics of Climate Change" og var ftuttur í Hátíðasal. Pachauri er formaður lofts-
lagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Hann tók við Nóbelsverðlaunum fyrir hönd
IPCC árið 2007 þegar Al Gore. fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, voru einnig
veitt Nóbetsverðlaunin. Pachauri er jafnframt forstöðumaður vísinda- og tækni-
stofnunarinnar TERI í Delhi á Indlandi en hún fæst við rannsóknir á orkunýtingu
og endurnýjantegum orkugjöfum. Samstarfssamningur hefur verið gerður mitli
Háskóla íslands og TERI.
Lögmaður Færeyja flutti fyrirlestur í Háskóla íslands
Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, dvaldi í október hér á tandi í opinberri
heimsókn í boði forsætisráðherra. Við það tækifæri heimsótti hann Háskóla
íslands og flutti fyrirlestur í Hátfðasal undir yfirskriftinni „The Faroes in a
globalized wortd - opportunities and challenges".
Kvikmyndaleikstjórinn Milos Forman í heimsókn
Um haustið hélt tékkneski kvikmyndaleikstjórinn Milos Forman fyrirlestur og sat
fyrirsvörum í Háskóta íslands. en Forman var heiðursgestur Alþjóðtegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Forman er einn fjögurra núlifandi leikstjóra sem
htotið hefur tvenn Óskarsverðlaun.
Rektor heimsótti Japan og Bandaríkin
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Islands. heimsótti Harvard háskóla í Banda-
ríkjunum í byrjun mars og hélt þar erindi við Menntavísindaskóla Harvard (Har-
vard Graduate School of Education) þar sem hún fjaliaði um hlutverk og ábyrgð
háskóla á tímum endurreisnar efnahagslífs. Rektor átti jafnframt fundi í Harvard
School of Public Health sem er í víðtæku samstarfi við Háskóla íslands á sviði
rannsókna og kennslu í lýðheilsuvísindum.
I október hélt rektor til Japan í boði þarlendra stjórnvalda og heimsótti háskóla og
fyrirtæki í Tokyo og Kyoto. I ferð sinni hélt rektor m.a. erindi við Waseda-háskóla í
Tokyo þar sem hún kynnti Háskóla íslands og ræddi hlutverk og mikilvægi há-
skóta í alþjóðlegum efnahagsþrengingum. Waseda-háskóli sérhæfirsig í félags-
og hugvísindum og er einn af samstarfsskótum Háskóta ístands í Japan. íslenska
hefur verið kennd við Waseda-háskótann frá 2003 og stunda nú um 40 nemendur
nám í íslensku. Rektor heimsótti einnig Keio-háskóla sem er einkaháskóli með
sérhæfingu í hagfræði og lögfræði. Þá heimsótti rektor Kinki-háskólann í Osaka
og hélt þar erindi.
34