Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Blaðsíða 45
* Umsjón og eftirfylgni með ytri úttektum á háskólanum í heild og einstökum
einingum hans. Á árinu hófust ytri úttektir á námsbraut í fornleifafræði. námi
og kennslu í lögfræði, viðskiptafræði, ferðamálafræði og guðfræði, auk
eftirfylgniúttekta með hugvísindum og raunvísindum. Einnig annaðist
gæðanefnd eftirfylgni með ábendingum í lokaskýrslum sérfræðinganefnda
vegna viðurkenningar menntamálaráðuneytisins á fræðasviðum háskólans og
undirflokkum þeirra og í lokaskýrslum vegna umsóknar háskólans um
heimild til að bjóða doktorsnám.
* Umfjöllum og afgreiðsla ýmissa erinda sem háskólaráð vísaði til
nefndarinnar.
* Gæðastjóri tók á árinu þátt í starfshópi mennta- og
menningarmálaráðuneytisins og íslenskra háskóla um gert viðmiða fyrirytra
og innra eftirlit með gæðum kennslu og rannsókna.
* Þátttaka í skipulagningu norrænnar ráðstefnu um gæðamál sem haldin var
16.-17. apríl. Að ráðstefnunni stóðu mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Samtök norrænna gæðamatsstofnana (NOQA) og Háskóli íslands. Á
ráðstefnunni flutti gæðastjóri framsöguerindi um gæðakerfi Háskóla íslands.
* Gæðastjóri sat ráðstefnu EUA, ENQA, ESU og EURASHE, 4th European Qality
Forum. sem fram fór í Kaupmannahöfn dagana 19.-21. nóvember.
Jafnréttisnefnd
Jafnréttisnefnd hélt átta fundi á árinu og nefndin var þannig skipuð í lok árs 2009:
Brynhildur Flóvenz, dósent í Lagadeild, formaður, Arnfríður Guðmundsdóttir,
prófessor í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Karl Örn Karlsson. lektor í
Tannlæknadeild. Ólafur Páll Jónsson, dósent í Uppeldis- og menntunarfræðideild,
Rögnvaldur Ólafsson. dósent í Raunvísindadeild, Unnur Dís Skaptadóttir,
Prófessor í Félags- og mannvísindadeild, og Guðrún Sóley Gestsdóttir, fulltrúi
stúdenta, sem tók við af Rakel Adolphsdóttur. Inga Lára Björnsdóttir sat einn fund
sem fulltrúi stúdenta.
Þteð nefndinni störfuðu þau Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi, Amalía Skúladóttir.
Utari nefndarinnar. og Kolbrún Einarsdóttir, starfandi ritari nefndarinnar.
1 upphafi árs samþykkti háskólaráð nýja jafnréttisáætlun Háskóla íslands fyrir
árin 2009-2013. sem jafnréttisnefnd hafði unnið drög að. í þeirri áætlun eru ýmis
oýmæli, m.a. ákvæði um að jafnréttisnefnd skuli starfa á hverju fræðasviði. Ný
jafnréttisáætlun er byggð á nýjum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla (nr. 10/2008) þar sem gengið er lengra í því að tryggja jafnt hlutfall kynjanna
i nefndum. stjórnum og ráðum á vegum hins opinbera. Áætlunin er aðgengileg á
'slensku og ensku á vefgátt jafnréttismála í Háskóla íslands, www.jafnretti.hi.is.
Jafnréttisnefnd stóð um vorið fyrir fyrirlestraröðinni Hvar er fjölskyldan? þar sem
tjallað var um jafnrétti og fjölskyldumál. Upptökur af þremur fyrirlestranna eru á
wwwjafnretti.hi.is.
A árinu kom út. á vegum nefndarinnar, Skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála
[ Háskóla íslands 2003-2007 sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla
Istands. Skýrslan er birt í heild á íslensku. og meginhluti hennar á ensku, á
www.jafnretti.hi.is.
Skýrslunni var fylgt eftir með málþingi jafnréttisnefndar í apríl sem bar heitið
Jafnrétti í Háskóla (slands: Alvörumál eða óþarfa vesen? Þar var m.a. fjallað um
helstu niðurstöður skýrslunnar og um nýja jafnréttisáætlun Háskóla (slands.
september voru haldnir Jafnréttisdagar í Háskóla íslands og var jafnréttisnefnd
einn helsti bakhjarl þessarar þriggja daga hátíðar ásamt ráði um málefni fatlaðra
en nánar er fjallað um Jafnréttisdaga 2009 á www.jafnretti.hi.is. Nefndin stóð
einnig fyrir málþingi á Jafnréttisdögum sem bartitilinn Lært af sögunni:
Endurreisn á grundvelli jafnréttis.
A árinu veitti jafnréttisnefnd styrk til tveggja meistaranema við Háskóla íslands tit
eð vinna rannsókn á reynslu og aðstæðum kvenna í fjórum greinum á Verkfræði-
?9 náttúruvísindasviði. en verkefnið er einnig styrkt af kennslumálasjóði Háskóla
Islands og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Styrkina hlutu þær Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, meistaranemi í kynjafræði, sem vinnur eigindlega rannsókn og
Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir. meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf. sem vinnur
megindlega rannsókn.