Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Page 178
Styrkur fékkst frá Norræna menningarsjóðnum.
Málþing í tilefni af aldarafmæli Jóns Jóhannessonar, prófessors í sagnfræði. Þingið var
haldið 23. ágúst á vegum Sagnfræðistofnunar og afkomenda Jóns, undir stjóm Helga
Þorlákssonar og Gunnars Karlssonar.
Ráðstefnan Uppruni og þróun fomaldarsagna Norðurlanda. undirstjóm Ármanns
Jakobssonar, 28.-30. ágúst.
Ráðstefnan Náttúran í Ijósaskiptunum. Ráðstefnan var haldin 19. september á vegum
Heimspekistofnunar, undirforystu Bjöms Þorsteinssonar.
Málþing til heiðurs Sigurði Páissyni, Ég skal fara um þig orðum. sem haldið var 19.
september á vegum Bókmennta- og listfræðastofnunar, undir forystu Bergljótar
Kristjánsdóttur og Guðrúnar Nordal.
Röð hádegisfýrirlestra á vegum námsbrautar í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnunar
undir yfirskriftinni Hvemig verður bók til? Rúnar Helgi Vignisson stýrði fyrirlestraröðinni.
Ráðstefna 21. nóvember undir yfirskriftinni Jörgen Jörgensen. Bíræfinn sólargapi eða
lýðræðishetja? Sagnfræðistofnun hélt ráðstefnuna undir stjóm Önnu Agnarsdóttur.
Tveggja daga alþjóðleg ráðstefna. Myndir í tíma, undirforystu Æsu Sigurjónsdóttur
lektors í listfræði, 27. og 28. nóvember.
Tveggja daga málþing. 30. nóvember og 1. desember. haldið í tilefni af því að Joan
Maling. prófessor emeritus við Brandeis-háskóla í Bandaríkjunum. var sæmd
heiðursdoktorsnafnbót 1. desember. Að þinginu stóðu íslensku- og menningardeild og
Málvísindastofnun, í samvinnu við norræna öndvegissetrið NORMS.
Húsnæðismál og starfsaðstaða
Vorið 2009 flutti Hugvísindastofnun af 3. hæð í Gimti yfir í rými stjómsýstu sviðsins í
Aðalbyggingu. Verkefnisstjóri hefur eftir sem áður umsjón með vinnurými doktors-
nema í Gimti en þar fjölgaði umtalsvert um haustið þannig að aðstaðan má heita full-
nýtt. Sameining skrifstofu Hugvísindastofnunar og stjómsýslu sviðsins hafði jákvæð
áhrif á báða bóga.
Fjármál
Við úthlutun fjárveitingarfrá Hugvísindasviði til Hugvísindastofnunarvartekið mið af
þeim mótframlögum sem sviðið fékk vegna styrkja úr samkeppnissjóðum. Um var að
ræða hækkun frá fyrra ári þegar tekið er titlit tit þess að ýmis kostnaður færðist á
árinu yfir til Hugvísindasviðs um teið og stofnunin varð nánari hluti af stjómsýstu
sviðsins en áður. Það svigrúm sem þetta skapaði var nýtt tit að byggja undir
starfsemina til tengri tíma, ekki síst með því að leggja fé í tvo nýja sjóði. sem fyrr er
getið. Htuta fjárveitingarinnar er varið til að styrkja starfsemi aðildarstofnananna, sem
fengu fast framlag og framlag byggt á hlutfallslegri skiptingu mótframlaga.
Asíusetur íslands - ASÍS
Stjóm og starfsfólk
í stjórn Asíuseturs íslands - ASlS sátu Ingjatdur Hannibalsson, stjórnarformaður.
Amgrímur Jóhannsson, Magnús Jónasson og Sigríður Þorgeirsdóttir. Forstöðumaður
og eini starfsmaður ASlS var Geir Sigurðsson í 50% starfshtutfalli. Geir gegnir einnig
stöðu forstöðumanns Konfúsíusarstofnunar Norðurljóss innan sama stöðugitdis.
Hlutverk og rannsóknir
Hlutverk ASlS felst einkum í því að stuðla og standa að rannsóknum og menntastarf-
semi sem snýr að Asíu. Einnig heldur hún úti tengslum við inntendar og erlendar
samstarfsstofnanir og ber þar helst að nefna Norrænu Asíustofnunina (NIAS) í
Kaupmannahöfn og Nordic NIAS Council (NNC).
Forstöðumaður hefur stundað rannsóknir í nafni stofnunarinnar, einkum á sviði
kínverskrar heimspeki og birtingarmynda hennar í Kína samtímans. ASlS gerðist aðili
að rannsóknarverkefni um náttúrusýn í fyrirbærafræði og austurlenskri heimspeki í
samstarfi við Heimspekistofnun Háskóla íslands. Forstöðumaður tók þátt í ráðstefn-
unni Náttúran í tjósaskiptunum sem hatdin var við Háskóta Islands þann 19. sept-
ember innan ramma þessa verkefnis.
176