Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Síða 56
Guðrún J. Bachmann sat í stjórn stýrihóps NUAS um markaðs- og kynningarmál
en hún vann að undirbúningi ráðstefnu NUAS um þau mál sem fram fór á íslandi
í maí 2009 og stýrði allri framkvæmd ráðstefnunnar. Guðrún sat einnig í stjórn
undirbúningsfélags um Tilraunahús. Þá sat Jón Örn Guðbjartsson í starfshópi um
aldarafmæli Háskóla íslands ásamt Ásthildi Sturludóttur.
Kennslumál, stúdentar og
brautskráningar
Helstu verkefni kennslusviðs eru yfirumsjón með kennslu- og nemendamálum
skólans, reglusetningu og samningagerð, prófahatdi, mati á námi frá öðrum
skólum, innlendum sem erlendum. jafnréttismálum og undirbúningur og
afgreiðsla mála fyrir háskólaráð.
Kennslusvið annast sameiginteg mál háskótans er varða kennslu. próf, skráningu
stúdenta, kennsluhúsnæði og búnað. Á vegum þess er jafnframt starfrækt
Kennslumiðstöð, Námsráðgjöf. Nemendaskrá og Þjónustuborð í Háskótatorgi
sem sérstakar starfseiningar. Samkvæmt samningi háskólans við menntamát-
aráðuneytið starfrækir kennstusvið ENIC/NARIC-upplýsingaskrifstofu um
viðurkenningu náms frá öðrum löndum.
Háskólaárið telst frá 1. júlí til jafnlengdar næsta ár og skiptist kennsluárið í tvö
misseri. haustmisseri frá 20. ágúst til 18. desember og vormisseri frá 4. janúartil
10. maí. Nýskráning fer fram í lok maí og byrjun júní ár hvert og einnig er tekið
við skráningarbeiðnum í byrjun janúar. Háskóli íslands brautskráir stúdenta
tvisvar á ári, í júní og febrúar. Stúdentar sem tjúka námi í september geta fengið
námslok sín staðfest og prófskírteini afhent í október. Áfram voru nýttar heimildir
til að veita undanþágu frá inntökuskilyrðum háskólaárið 2009-2010. skv. ákvörðun
háskólaráðs, en þessar heimildir höfðu ekki verið nýttar um árabil allt til
háskólaársins 2007-2008. Vegna efnahagshrunsins haustið 2008 var ákveðið að
leyfa umsóknir nemenda á vormisseri 2009. enda þótt óljóst væri um að það
fengist bætt með fjárframlagi. Inn voru teknir rúmlega 1.400 nýir nemendur.
Ugla -vefkerfi Háskóla íslands
Mikilvægur hluti af starfi miðlægrar stjórnsýslu og stjórnsýslu deilda snýr að
þjónustu og aðstoð við nemendur. við skráningu. miðlun upplýsinga. skýringar á
námsframvindu og reglum og aðstoð við tölvu- og nettengingu. Ugla er innri
náms- og upplýsingavefur sem skólinn rekur og auðveldar upplýsingaflæði og
samskipti í námi og skipulagi þess með ýmsum hætti. Þróun Uglunnar fer fram í
nánu samstarfi kennslusviðs og Reiknistofnunar Háskóla fslands. Hatdið var
áfram smíði sk. vöruhúss gagna á haustmisseri og rafrænar umsóknir í fram-
haldsnám voru tilbúnar fyrir skráningu á vormánuðum. Á haustmisseri var hafist
handa við forritun rafrænna umsókna erlendra nemenda í grunn- og
framhaldsnám.
Kennsluskrá
Kennsluskrá háskólans er nú eingöngu gefin út á vefnum og hefur svo verið frá
háskólaárinu 2007-2008. f kennsluskránni (kennsluskra.hi.is) eru m.a. tilgreindar
allar námsleiðir og öll námskeið sem kennd eru við skólann og skipulagi
námsins lýst. Gerð er grein fyrir hverri námsleið. með yfirliti um námskeið og
skiptingu þeirra á misseri og námsár. Lýsingum einstakra námskeiða má fletta
upp, bæði á íslensku og ensku, auk annarra ítarupplýsinga. f kennsluskrá er
einnig að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar sem snerta skráningu, nám og próf.
svo og þjónustu við nemendur. réttindi þeirra og skyldur.
Kennsluskráin er unnin í samvinnu ritstjóra. ritnefndar og tengiliða deilda. Hvert
fræðasvið á fulltrúa í ritnefnd en kennslusvið ræður ritstjóra. Hver deild skipar
starfsmann (tengilið) sem sinnir kennsluskrárvinnu fyrir hönd deildarinnar. Kenn-
arar koma einnig að gerð kennstuskrár. á þann hátt að þeir eru ábyrgir fyrir
tilteknum upplýsingum um námskeið, svo sem lýsingu á inntaki þeirra. markmið-
um og hæfniviðmiðum. Kennsluskráin er alfarið unnin og birt í Uglu. hugbúnaðar-
kerfi Reiknistofnunar Háskóla íslands. Ritstjóri kennsluskrár er Sveinn Klausen.
Um efni kennsluskrár, verkaskiptingu aðila, ábyrgð og vinnureglur er kveðið á í
sérstökum verklagsreglum um kennsluskrá. í samræmi við ákvæði í 23. gr.
reglna fyrir Háskóla íslands nr. 569/2009. Ritnefnd kennsluskrár vann að mótun
verklagsreglnanna í samvinnu við kennslusvið og voru þær samþykktar í há-
54