Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Blaðsíða 164
Hugvísindasvið Háskóla íslands er meginseturfræðastarfsemi í hugvísindum á íslandi
og hefur ríkar skyldur við íslenska menningu, samfélag og þjóðlíf. Þessi ábyrgð tekur
ekki einvörðungu til íslenskrarfræðastarfsemi í hugvísindum. og umræðu sem henni
tengist, því að sviðið er jafnframt útvörður ístenskra hugvísinda og fulltrúi þeirra í
erlendu fræðasamhengi og alþjóðlegri samvinnu. Starfsfólk Hugvísindasviðs leitast við
að efta með sér, og þá ekki síst meðal nemenda sinna. lýðræðislega og akademíska
ábyrgð gagnvart íslensku samfélagi sem og gagnvart gildum alþjóðlegs fræðastarfs
og þekkingaröftunar.
Stefnu sviðsins má lesa í heild sinni á innri vef háskólans.
Starfsmannamál
Tímamót urðu í september 2009 þegar tveir prófessorar létu af störfum eftir langan
starfsatdur við skólann en bæði Helga Kress, prófessor í bókmenntafræði, og Gunnar
Karlsson, prófessor í sagnfræði. fögnuðu sjötugsafmæli í mánuðinum. Helga Kress
var ráðin lektor í íslensku fyrirerlenda stúdenta við Háskóla íslands árið 1973 en hún
var fyrsta konan sem var fastráðin kennari við heimspekideild. eins og deildin hét þá.
Árið 1981 var hún skipuð lektor í almennri bókmenntafræði og prófessor í sömu grein
1991. Gunnar Karlsson kenndi við Háskóla Islands í rúm 30 ár en hann varð lektor í
sagnfræði árið 1976 og varskipaður prófessor árið 1980.
Ásdís Guðmundsdóttir tók í upphafi árs við nýju starfi sem kennslustjóri Hugvísinda-
sviðs en var áður skrifstofustjóri Guðfræðideildar.
Anna Hinriksdóttirtók við starfi verkefnastjóra fyrir Sagnfræði- og heimspekideild og
íslensku- og menningardeild af Margréti Hitmisdóttur þann 1. maí. Jóhanna María
Vilhelmsdóttir tók síðan við starfi Önnu 1. nóvember.
Nánar er fjallað er um starfsmannamát í köflum um einstakar deitdir sviðsins og í
kafta um ný og breytt störf.
Fjöldi starfsmanna eftir starfsheitum á Hugvísindasviði í árstok 2009.
Vegsaukar og verðlaun
Rannsóknastyrkir og vísindaverðlaun
Við úthlutun styrkja úr Rannsóknasjóði Rannís fyrir árið 2009 komu fimm styrkir í
hlut starfsmanna Hugvísindasviðs. Eiríkur Rögnvaldsson. prófessor í íslensku,
hlaut öndvegisstyrk. ríflega 14.5 m.kr.. til að vinna verkefnið Hagkvæm máltækni
utan ensku - íslenska titraunin. Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í ensku. hlaut
verkefnastyrk að fjárhæð 6.43 m.kr. fyrir verkefnið Enska sem „lingua franca'' á
íslandi. Staða enskunnar og breytt málumhverfi. Guðmundur Hátfdanarson.
prófessor í sagnfræði, hlaut verkefnastyrk að fjárhæð 6,36 m.kr. fyrir verkefnið
Mótun hins nútímatega einstaklings á íslandi - menning. vald og kyngervi
1870-1950. Þórhatlur Eyþórsson. verkefnisstjóri og sérfræðingur í málvísindum.
hlaut verkefnisstyrk að fjárhæð 5.95 m.kr. fyrir verkefnið Samspil bragkerfis.
hljóðkerfis og setningagerðar. Loks htaut Eyja Margrét Brynjarsdóttir, lektor í
heimspeki. rannsóknastöðustyrk að fjárhæð 4.58 m.kr. fyrir verkefnið Huglægir
eiginleikar.
Ármann Jakobsson. dósent í íslenskum bókmenntum, tók við
Hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra á Rannsóknaþingi hinn 1. jútí. Hvatningarverðtaun Vísinda- og
tækniráðs eru stærstu vísindaverðtaun sem veitt eru á Islandi og þeim fylgja tvær
m.kr. í verðlaunafé.
Stjórn Rannsóknasjóðs úthlutaði styrkjum úrsvonefndri markáætlun um öndveg-
issetur og klasa í febrúar sl. Um er að ræða stærstu styrki sem veittir hafa verið
hér á landi og eru þeir til sjö ára (2009-2015). Eitt af þeim þremur verkefnum (úr
hópi yfir 80 verkefna) sem hlaut styrk er verkefnið Öndvegissetur í jafnréttis- og
margbreytileikarannsóknum undir verkstjórn Irmu Erlingsdóttur, forstöðumanns
Rannsóknaseturs í kvenna- og kynjafræðum. en Sigríður Þorgeirsdóttir. prófess-
or í heimspeki. er formaður stjórnar verkefnisins og Valur Ingimundarson,
prófessor í sagnfræði. er einnig í stjórn þess. Öndvegissetrið hefur fengið nafnið
Edda.
Höskuldur Þráinsson. prófessor við Islensku- og menningardeild. hlaut heiðurs-
verðlaun Ásusjóðs árið 2009 fyrir margþætt störf, rannsóknir og útgáfu rita á sviði
íslenskra málvísinda og setningafræði. Viðurkenningin hefur í 40 ár verið veitt
162