Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Blaðsíða 106
Stoðþjónusta og stjórnsýsla
Á árinu var unnið að uppbyggingu og skipulagi stjórnsýslu og stoðþjónustu
fræðasviðsins. Steinunn Halldórsdóttir stjórnsýslufræðingur var ráðin sem
ráðgjafi sviðsins í nokkra mánuði fyrri hluta árs og með henni var unnið að og
lokið við verkferla innan sviðs. t.a.m. verkferla við gerð kennsluskrár, stunda-
skrár og brautskráningu. Þá var unnið að og lokið við verkferla við umsóknir í
sjóði í samvinnu við vísindasviðs Háskóla íslands. Einnig var unnið að skilgrein-
ingu og mótun á verkefnum Þjónustuborðs í Gimli. Rekstur Þjónustuborðs er í
umsjón Félagsvísindasviðs en Þjónustuborð annast einnig þjónustu við nemend-
ur og kennara Hugvísindasviðs og Sálfræðideildar Heilbrigðisvísindasviðs.
Haldnir voru þrír starfsdagar stjórnsýslu á sviðinu. Sá fyrsti var þann 20. mars.
Þarflutti Trausti Fannar Valsson fyrirlestra um stjórnsýslu- og upplýsingalög með
sérstöku tilliti til stjórnsýstu deilda og sviðs. Arnfríður Ólafsdóttir fjallaði um
tillögur starfshóps um bætta móttöku nýnema. Að fyrirlestrum loknum unnu
starfsmenn tillögur að fertum ýmissa stjórnsýsluverkefna í hópvinnu. Þá var
haldinn starfsdagur þann 15. maí. Þar fjaltaði Hatldór Zoéga, fjármálastjóri
sviðsins. um fjármál sviðs og deilda og Ingrid Kuhlman sálfræðingur flutti
fyrirlestur um breytingar á vinnustöðum. Einnig var unnið í hópvinnu með
sérstakri áherslu á að koma með hugmyndir um að bæta félagslíf á sviðinu.
Síðasti starfsdagurinn var þann 6. nóvember. Þar fjölluðu Ingibjörg Halldórsdóttir.
lögfræðingur háskótans, og Þórður Kristinsson. sviðsstjóri kennslusviðs, um lög
og reglur skótans m.t.t. ábyrgðar og verkaskiptingar miðlægrar stjórnsýslu, þ.m.t
háskólaráðs. fræðasviða og deilda. og svöruðu fyrirspurnum starfsmanna.
Einnig voru reglubundnir starfsmannafundir, auk vikulegra samráðsfunda
rekstrarstjóra með deildarstjórum.
Nefndir
I jafnréttisnefnd Félagsvísindasviðs voru: Þorgerður Einarsdóttir. fulttrúi
Stjórnmálafræðideitdar. formaður. Ársætl Valfetls. futltrúi Viðskiptafræðideildar,
Hervör Atma Árnadóttir, futltrúi Fétagsráðgjafardeildar. Ingótfur V. Gístason,
fulttrúi Félags- og mannvísindadeitdar. María Thejlt. fulttrúi Lagadeitdar, og Hetgi
Tómasson. fulttrúi Hagfræðideitdar. Futltrúi stúdenta hafði ekki verið titnefndur í
árstok.
[ kennslunefnd Félagsvísindasviðs voru: Þórhatlur Guðtaugsson. fulttrúi Við-
skiptafræðideildar, formaður. Pétur Leifsson. fulttrúi Lagadeildar, Anni G. Haugen.
fulltrúi Félagsráðgjafardeitdar, Alyson K. G. Baites, fulttrúi Stjórnmálafræðideitdar.
Sif Einarsdóttir, fulltrúi Félags- og mannvísindadeildar, og Hetgi Tómasson.
fulltrúi Hagfræðideildar. Fulttrúi stúdenta hafði ekki verið tilnefndur í árstok.
[ vísindanefnd Félagsvísindasviðs voru: Jónína Einarsdóttir, futltrúi Félags- og
mannvísindadeildar. Sigrún Júlíusdóttir. futltrúi Fétagsráðgjafardeildar. Tór
Einarsson. fulltrúi Hagfræðideildar, Róbert Spanó. fulltrúi Lagadeildar (hann var í
taunalausu leyfi og var Aðatheiður Jóhannsdóttir varamaður hans). Batdur
Þórhallsson. futltrúi Stjórnmálafræðideitdar, og Snjólfur Ólafsson. fulttrúi
Viðskiptafræðideildar. Fulltrúi stúdenta hafði ekki verið tilnefndur í árslok.
Húsnæðismál
Félagsvísindasvið hefur nú fengið framtíðarhúsnæði í þremur samtengdum
byggingum, Odda. Gimli og Lögbergi. sem einnig tengjast Háskólatorgi.
Skrifstofur Félagsvísindasviðs og deilda þess eru atlar á neðstu hæðinni í Gimli.
Lagadeild hefur aðsetur í Lögbergi. Viðskiptafræðideild í Gimti. Félagsráðgjafar-
deild, Hagfræðideild og Stjórnmálafræðideild í Odda. en kennarar Félags- og
mannvísindadeildar eru bæði í Gimli og Odda. [ ötlum þremur byggingunum er
jafnframt aðstaða fyrir rannsóknarstofnanir á Félagsvísindasviði og vinnuaðstaða
fyrir stundakennara, doktorsnema, meistaranema og stúdenta í grunnnámi.
Heitbrigðisvísindasvið. Hugvísindasvið. Menntavísindasvið og þverfræðilegar
rannsóknarstofnanir nýta til bráðabirgða hluta húsnæðisins í Gimli og Odda.
Félagsvísindasvið á þannig góða vaxtarmöguleika á næstu árum í byggingunum
þremur. þegar starfsemi annarra sviða flyst í aðrar byggingar á Háskólasvæðinu.
104