Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2009, Blaðsíða 274
Forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Islands og stjórnarformaður er
Rögnvaldur Ólafsson. Aðrir starfsmenn árið 2009 voru Birna Gunnarsdóttir og
Ásta Erlingsdóttir, verkefnisstjórar hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands. en
þær sinntu stjórnsýslustörfum fyrir stofnunina.
Stjórn stofnunarinnar er auk stjórnarformanns skipuð þeim Erlu Björk
Ólafsdóttur. framkvæmdastjóra Varar sjávarrannsókna við Breiðafjörð. Hreini
Haraldssyni vegamátastjóra. Jörundi Svavarssyni, prófessor við Háskóla íslands.
og Rannveigu Ólafsdóttur, dósent við Háskóla íslands.
Ársfundur undir yfirskriftinni „Lifað með landinu" var haldinn 14. maí í
Gunnarsholti á Rangárvölltum. en ný starfstöð var tekin í notkun þar á árinu.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Islands. og Sveinn Runótfsson landgræðslu-
stjóri höfðu framsögu á fundinum og fulltrúar allra fræðasetranna kynntu
rannsóknir sem fram fara á vegum stofnunarinnar. Fundarstjóri var Sigurður
Sigursveinsson. framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands.
Vísindavaka. I september tóku nokkur fræðasetur þátt í Vísindavöku á vegum
Rannís og vöktu að vanda mikla athygli gesta, með fróðlegum kynningum á
starfsemi setranna.
Fræðasetrið á Hornafirði
Fræðasetrið á Hornafirði var stofnað 30. nóvember 2001. Meginhlutverk þess er
að auka þekkingu á umhverfi. náttúrufari. menningu og samfélagi á Suðaust-
urlandi. bæði með sjálfstæðum rannsóknum og með því að veita fræðimönnum
og nemendum, erlendum jafnt sem innlendum, aðstöðu til rannsókna- og
fræðastarfs heima í héraði. Fræðasetrið ertit húsa í þekkingarmiðstöðinni
Nýheimum á Höfn og tekur virkan þátt í margvíslegri starfsemi þar. m.a. í
tengslum við nýsköpun og þekkingarmiðlun. auk þess að vera í samstarfi við
Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit. Sumarið 2008 var komið á fót nýrri starfsstöð
setursins á Kirkjubæjarklaustri sem rekin er í samvinnu við Kirkjubæjarstofu. I
stjórn Fræðasetursins sitja þrír fulltrúar Háskóta fstands: Rögnvaldur Ólafsson
(formaður), Helgi Björnsson og Karl Benediktsson, ásamt Stefáni Ótafssyni.
futltrúa Sveitarfétagsins Hornafjarðar. og Bjarna Daníelssyni. fulltrúa
Skaftárhrepps.
Forstöðumaður setursins er Þorvarður Árnason. umhverfis- og náttúrufræðingur,
sem tók við því starfi um mitt ár 2006. Auk hans störfuðu árið 2009 fjórir fast-
ráðnir starfsmenn í aðatstarfsstöð fræðasetursins á Höfn og einn í starfsstöðinni
á Kirkjubæjarktaustri. Lausráðnirstarfsmenn árið 2009 voru fjórir. Fjöldi nem-
enda vinnur að rannsóknum í verkefnum á vegum setursins eða sem tengjast
því: árið 2009 voru doktorsnemar í stíkum verkefnum þrír en meistaranemar níu,
þar af þrír með aðsetur í Nýheimum. Námsverkefnin eru unnin á ótíkum sviðum
en ftest fatla þó undir umhverfis- og auðlindafræði. heimspeki, ferðamátafræði.
landfræði eða bókmenntafræði.
Meginviðfangsefni Fræðasetursins á Hornafirði eru rannsóknirá sviði umhverfis-
máta og náttúruverndar, svo og fjötbreytt rannsókna- og þróunarverkefni sem túta
að sjátfbærri ferðaþjónustu og/eða annarri nýsköpun í greininni. Við setrið eru
einnig stundaðar rannsóknir á bókmenntum og tistum og þar hafa enn fremur
verið unnin verkefni í landfræði. jöklafræði og þjóðfræði. Viðamestu verkefni
Fræðasetursins árið 2009 voru (a) ráðgjöf við gerð verndaráætlana fyrir tvö af
fjórum rekstrarsvæðum Vatnajökulsþjóðgarðs. (b) verkefnið Islenskt tandslag -
flokkun og verðmætamat. unnið í samstarfi við Líffræðistofnun Háskóla Islands
fyrir Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. og (c) Northern
Environmental Education Development project (NEED). samstarfsverkefni með
stofnunum í Finnlandi, Noregi og írlandi um þróun umhverfismenntar og
fræðandi ferðaþjónustu í tengstum við friðtýst svæði. styrkt af Norðurslóðaáætlun
Evrópusambandsins. Meðat annarra verkefna má nefna rannsóknir á
höfundarverki Þórbergs Þórðarsonar. rannsóknir sem varða mat á sjálfbærni
staðbundinnar matvælaframleiðslu (samstarfsverkefni með Matís o.fl.) og ýmis
samstarfsverkefni með Ríki Vatnajökuls ehf.. ferðaþjónustu-. menningar- og
matvælaklasa Hornafjarðar.
Árið 2009 var haldið eitt vettvangsnámskeið við Fræðasetrið fyrir íslenska
nemendur. Setrið hafði einnig milligöngu um komu tveggja ertendra námshópa til
Hornafjarðar og annaðist kennslu fyrir annan þeirra að hluta. Haldnar voru tvær
272