Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 8

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 8
182 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. sern beint áttust þar við, og að ekki hentaði, að skipa öllum málefnum manna eingöngu eptir högum þeirra að- ilja sem við áttust og þá því síður eptir högurn annars. Svo fór og á þessu sviði. Með danskri tilskipun frá 14. Okt. 1763, sem birt var á Alþingi og lengi farið eftir hér á landi, er svo ákveðið að bæði foreldri óskilgetins barns skuli standa. straum af uppeldi þess, eða eins og tilskipunin orðar það, að faðir- inn skuli til jafns við barnsmóður sína („lige med Mod- eren“) kosta uppeldi barnsins og að minnsta kosti greiða helming þurftarmeðgjafar. Hér er að þessu leyti horfið frá því, að skoða barngetnað ósamgefinna skaðabótaskylt verk af hendi karlmannsins. Jafnframt er gert ráð fyrir því i tilskipuninni, að móðirin hafi barnið hjá sér og annist uppeldi þess með styrk föðurins, enda er þetta fyrirkomulag eðlilegast og affarasælast, livort heldur litið er á hagsrnuni barnsins, móðurinnar (foreldranna) eða almennings. í 79. gr. fátækralaganna nr. 44/1905 er téð tilskipun og ýms yngri héraðlútandi ákvæði feld úr gildi, en meginreglum tilskipunarinnar í þessu efni, þar á meðal i'ramfærsluskyldu beggja foreldra, er þó haldið í lögunum. En þó að bæði tilskipunin og fátækralögin heimiluðu, að gera barnsföður hærra meðlag en helming framfærslu- kostnaðar barnsins og móðurinni þá að sama skapi minna, þá munu yfirvöldin þó oftast hafa skift kostnaðinum jafnt milli foreldranna. Og fram að gildistöku utanhjónabandst)arnalaganna var engin heimild t.il að gei-a barnsföður (meðlagsskyldum) neitt aukaframlag með barninu, þótt á unga aldri væri, svo sem vegna sjúkdóms, né heldur til að styrkja það á nokkurn hátt, eptir að það var koniið af ómagaaldri. Þá var barnsmóður ekki heldur heimil önnur krafa á hendur barnsföður (meðlagsskyldum) heldur en út af barnsförunum, og er sú krafa í 13. gr. tatækralagana nánar ákveðin: „að nrinsta kosti helmingur þess kostnaðar, er af barnsförunum leiddi fyrir tiana“. En hér nrun oftast hafa borið að sanra brunni, sem um barnsmeðgjöfina, að

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.