Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 19

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 19
Afstaða framfærslusveitar barns- föður til óskilgetins barns hans. Það leið á löngu frá því að réttur barnsmóður gagn- vart barnsföður til að taka hlutdeild í kostnaði við fram- færslu barns þeirra var trygður með lögum, uns móðirin öðlaðist rétt til hins sama gagnvart framfærslusveit lians. Með tilskipun 14. okt. 1703 var þessi skylda lögð á föð- urinn, þó ekki lengur en til fullra 10 ára aldurs barnsins. Þetta aldurstakmark mun þó ekki hat’a verið talið gilda eftir að fátækrareglugjörðin frá 1834 kom út. Með úr- skurði yflrvalds mátti ákveða, að barnsfaðir skyldi annast framfærslu barnsins eftir ástæðum og efnahag hans, og mátti jafnvel leggja á hann framfærsluskylduna einsaml- an, ef hagur lians leyfði, en móðirin var snauð eða dáin. Ef föðurinn þraut, hann gat ekkert af mörkum látið, svo og ef hann var dáinn, horfinn eða farinn af landi burt, varð ekkert frá hans hlið fengið að lögum til framfærslu barnsins. Þannig stóð þar til lög nr. 9 frá 1890, um með- gjöf með óskilgetnum börnum, komu í gildi. Þá var leitt hér í lög, að óskilgetiö barn fékk rétt til uppeldisfjár úr búi látins föður og að framfærslusveit barnsföður skyldi leggja fram meðlag það, sem föðurnum var gert að greiða, ef því varð ekki náð hjá honum. En þessi skylda fram- færslusveitar var þó bundin þeim skilyrðum, að faðirinn væri á lífi og innanlands. Þetta síðarnefnda ákvæði hélst að meginreglunni til óbrejdt í lögum þar til lög nr. 46/ 1921, um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna, gengn í gildi. Með lögum frá 12. janúar 1900 og síðar með fátækra- lögunum voru að vísu gerðar breytingar á ákvæðinu, en

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.