Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 33

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 33
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 207 boð yrðu kölluð aftur, og hafa fiestir litið svo á að sams- konar birtingaraðferð nægði ekki alment, heldur yrði um- bjóðandi að sanna í hverju éinstöku tilfelli, að þeim manni er hann þá á við hafi verið kunnugt um afturköllunina. Firmalögin 42. 12. nóv. 1903, 31 sbr. 7. gr. heimila að vísu að afturkalla prókuru-umboð með tilkynningu til verslanaskrár, en því ákvæði verður vafalaust ekki beitt um önnur umboð. Hitt nýmælið er í 17. gr. laganna. Hafi umbjóðandi fengið umboðsmanni í hendur skriflegt umboð og geti hann af einhverjum ástæðum eigi fengið því skil- að aftur er hann illa settur. Hann á það á hættu að um- boðsmaðurinn noti umboðið og þó hann geti farið í mál við hann og fengið hann dæmdan til þess að skila um- boðinu þá er það hvorttveggja, að sú málsókn getur tekið langan tíma og að óvíst er hvort til umboðsmannsins næst er fullnægja á dóminum. Þar er sérstök nauðsyn á að heimila honum að fá umboðið ógilt með úrskurði yfirvalds eða dómara, sú heimild er veitt í 17. gr. og er það ný- mæli, því eigi var áður lieimild til slíkrar ógildingar hjá þessum þjóðum. Ogildingaraðferðin er einkar greið. Enga opinbera stefnu þarf að gefa út, — hitt nægir, að valds- manninum sé gjört það sennilegt að ógildingar sé þörf. Hér á landi mun vera heimild, til að fá umboð dæmd ó- gild, í 1. 30 3. nóv. 1915. Umboð munu falla undir það sem þar er nefnt heimildarskjöl. En hér verður að nota venjulega aðferð við ógildingar og er hún einkar óheppi- leg þar sem svo mikið liggur á. Akvæði líkt og 17. gr. laganna mundi því vera til bóta hér. I Danmörku er und- irdómurum ætlað að gefa úrskurði þessa, í Noregi valds- manni þeim er heldur verslanaskrána og í Svíþjóð „över- exekutoru. 19. gr. skyldar umbjóðanda til þess að tilkynna afturköllun eða ógildingu umboðs, þeim manni sein hann hefir ástæðu til að ætla að umboðsmaðurinn muni skifta við í sínu nafni, þrátt fyrir afturköllun eða ógildingu um- boðsins, enda megi hann ætla að þeim manni sé ókunnugt um að umboðið sé fallið niður. Yerður hann að öðrum kosti bundinn við iöggjörninga þá er umboðsmaðvrinn

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.