Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 17

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 17
Thnarit lögfræðinga og hagfræðinga. 191 hjónabandssamförum foreldranna og að skilgerandi og skilgerður séu báðir á lífi, þá er skilgerðin fer fram. Þinglýsing óskilgetins barns er ekki skilgerð. Hún er í því fólgin, að maður sem kona hefir kent óskil- getið barn, lýsir því yfir á varnarþingi sínu (manntals- þingi eða bæjarþingi), að hann eigi barnið, enda sé yfir- lýsing hans rituð í þingbókina, 39. gr. Það er skilyrði fyrir þinglýsingu, að ætla megi þinglýsanda föður barns- ins og að bæði hann og barnið séu á lífi, þegar þinglýs- ingin á sér stað. Skilgerð samkv. 38. gr. og þinglýsing mundu sérstak- lega fara fram til þess að útvega barni, sem annaðhvort ekki hefii’ orðið feðrað eða feðrað hefir verið með eiði barnsmóður eða eiðfalli föður, lögerfðarétt eftir föður og föðurfrændur og þeim eftir barnið. Og af hvorri athöfn- inni um sig getur það leitt, að faðirinn fái foreldravald yfir barninu, sem hann ella hefði eigi átt tilka.ll til, 1. mgr. 33. gr. sbr. 40. gr. og 2. mgr. 33. gr. Það er á almanna vitorði, að yfirleitt fer ver um óskilgetin börn á uppvaxtarárunum heldur en um skilget- in. Og stafar það vafalaust að miklu leyti af erfiðum kring- umstæðum mæðranna, sérstaklega á meðgöngutímanum og fyrstu árum barnanna. Og þá er hitt ekki síður vitanlegt, að aðstæður þær, er barnið á við að búa á uppvaxtarárunum, ráða yfirleitt miklu um síðari afkotnu barnsins og oft einnig um örlög niðja þess. Það er talfræðilega sannað í útlöndum, að óskilgetnum er miklu hættara við að lenda siðar á villi- götum en skilgetnum. 1 þeim hóp gætir þar miklu oftar en í liinum ýmsra bresta, svo sem ónytjungsskapar, lauslætis og afbrota. Hér eru að vísu engar skýrslur til í því efni, en engin ástæða til að efast um, að hlutfallið hér sé líkt því, sem þar gerist. Þegar þess nú annars vegar er gætt, að hér á landi munu vera um 17 af hundraði óskilgetnir og hins vegar

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.