Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Qupperneq 12

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Qupperneq 12
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 18(> tækralögumnn hélt ekkjan því aðeins áfram að greiða nieðlagið, að valdsmaður hefði sérstaklega kveðið svo á. A u k a m e ð 1 a g s getur barnsmóðir og aðrir lögmælt- ir framfærslumenn, þar á meðal framfærslusveit, krafist af hendi barnsföður (meðlagsskylds) samkvæmt 22. gr. til hjúkrunar og lækningar og greftrunar barnsins, sýkist það eða andist á ómagaaldri. Lögin nefna þetta meðlag „aukastyrku af hendi barnsföður, og verður barnsmóðir vafalaust að taka þátt í hér um ræddum kostnaði með barnsföður sínum. Þetta meðlag verður sennilega innheimt á sama. liátt og aðalmeðlagið. Varameðlags samkvæmt 23, gr. má ennfremur krefja af hendi föður harnsins, ekki meðlagsskylds, eftir að bai'nið er komið af ómagaaldri, reynist barnið „ófært, vegna andlegra eða líkamlegra bresta eða annara ósjálf- ráðra orsaka, til þess að hafa sjálft ofan af fyrir sér11- 1 19. gr. hjónabandsbarnalaganna er lík skylda lögð á foreldrana gagnvart skilgetnum börnum. Þeir eiga „svo sem þeir eru færir um (að) ala önn fyrir börnum sínum 16 ára og eldri og mega börnin ekki verða sveitarþurfar meðan þau eiga foreldri á lífi, sem er þess umkomið að annast þau“. Það sést á samanburði ákvæða þessara, að framfærsluskylda föður óskilgetins barns er vægari en framfærsluskylda foi'eldris á skilgetnu barni. Pyrst og fremst ber föður óskilgetna barnsins því aðeins að fram- færa barnið, að það sé „ófært til að hafa sjálft ofan af fyrir séru. Honum ber. því ekki að framfæra vinnufært barn sitt. Og þar næst heldur ekki, þó að barnið sé óvinnu- fært, sé sjálfráðum ástæðum um aö kenna, megnum drykkjuskap, ráðleysi o. s. f. Enn ber föður óskilgetna barnsins ekki að annast barnið nema „af sinni hálfuu, og það jafnvel því aðeins, að hann sé „aflögu fær að dómi sveitarstjórnar í dvalarsveit sinniu. Orðin „af sinni hálfuu ber sennilega að skilja svo, sem ekki, verði krafist meira en helmings (þurftar)framlærslu af hendi föður. Og „af-

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.