Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 13
Tímarit lögfræðinga og hagfrasðinga.
187
lögufær“ getur maður þvú að eins heitið, að liann liafi
afgang sæmilegs framfæris sér og skylduliði sínu til handa,
konu, börnum á ómagaaldri og hjúum. Framfærslusveit
barnsins mundi sennilega að jafnaði krefja meðlags þessa,
en móðirin, sem ríkari skylda hvílir á í þessu efni sam-
kvæmt 17. gr. utanhjónabandsbarnalaganna, mundi og geta
það. Framfærsluskylda óskilgetins barns á föður er að
þessu leyti söm og hans á því. 25. og 2b. gr. verða ekki
notaðar til innheimtu meðlags samkv. 23. gr.
Auk þess, sem miklu þyngri skyldur hvíla nú á barns-
föður en áður barnsins vegna, þá hafa skyldur hans gagn-
vart m ó ð u r barnsins verið auknar að tnjög miklum
mun. Samkvæmt 13. gr. fátækralaganna, sem rekja má
a. m. k. til 30. kap. Mannh. Jb., gat óskilfengin móðir
að vísu krafist að minnsta kosti helmings barnsfarakostn-
aðar af barnsföður sínum, en hún átti þá heldur ekki
frekari kröfur á hendar honum.
Þessari kröfuheimild er haldið í 1. mgr. 29. gr., en
við bætt í 2. mgr. hsimild til þess að krefjast eigi aðeins
alls barnsfarakostnaðar af liendi barnsföður, heldur og
alls kosnaðar við framfærslu og hjúkrun barnsmóður vegna
meðgöngunnar og barnsburðarins, hafi hann orðið sannur
að því við réttarransókn, að hafa komið fram barngæf-
um samförum við konuna gegn eða án vilja hennar.
En auk barnsfarakostnaðarins og nýnefndrar lítt raun-
tæku heimildar, getur móðir óskilgetins barns heimtað af
barnsföður sínum (meðlagsskyldum) framfærslustyrk sér
til handa næstu 6 vikur fyrir og næstu (> vikur eftir
barnsburðinn. Eins og áður greinir, getur kona, sem
gengið hefir með óskilgetið barn lengur en 6 mánuði,
höfðað barnsfaðernismál fyrir fæðingu barnsins gegn þeim,
sem hún kennir það. Lánist henni að feðra barnið eða
þó að ekki sé meira en að sanna samfarir á karlmanninn
á barngæfum tíma, þá getur hún og heimtað fi-amfærslu-
styrkinn fyrir fyrri 6 vikurnar greiddar sér fyrir fæðingu
barnsins. 3. mgr. 29. gr. Pramfærslustyrkinn á að ákveða