Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 16

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 16
190 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. vottfast. Jafnhliða þannig lagaðri faðernisjátningu setjalögin óslitna sambúð foreldra frá þvi 10 (þrítugnættum) mánuð- um fyrir fæðingu barnsins þangað til 3 árum eftir liana. Sama gildir, hafi maður beint verið dæmdur faðir óskilgetins barns eftir 14. gr. Hins vegar nægir það ekki til erfðaréttar (óskilgerðs og óþinglýsts) óskilgetins barns eftir föður og föðurfrændur og þeirra eftir það, að móð- irin hafl svarið barnið á karlmanninn eða hann ekki unn- ið honum stýlaðan synjunareið. Erfðaréttur óskiigetins barns eftir föður og l'öður- frændur verður sem skilgetins barns. hað verður lög- erfingi þeirra og skylduerfingi föður og föður-forfeðra og formæðra. Um erfðarétt barns eftir móður og móðurfrændur og hennar og þeirra eftir barnið fer, hér eftir sern liingað til, eins og um erfðarétt skilgetinna barna og ættingja þeirra, að þvi viðbættu, að enginn munur er hórgetinna og annara óskilgetinna barna. Nú eru raktar helstu lögfylgjur barngæfra utanhjóna- bandssamfara karls og konu, þeirra í rnilli og gagnvart barninu. Skal þó enn getið tveggja atvika, sem áhrif liafa sérstaklega á afstöðu föður til barnsins, en það er skil- gerð (legitimation) og þinglýsing, enda þótt hvorugt skifti nú jafnmiklu máli og áður, meðan óskilgetin börn erfðu ekki föður og föðurfrændur né þeir það. Skilgerð merldr gerð þá, er setur óskilgetið barn að lögum á bekk með skilgetnu barni gagnvart föður þess. Þó sést það á 2. lið 40. gr. utanhjónabandsbarna- laganna að (þarumræddri) skilgerð fylgja ekki öll réttindi skilgetnaðar. Skilgerð fer nú fram með tvennu móti, með eftirfarandi hjónabandi foreldranna, 37. gr. og með úr- skurði Stjórnarráðsins, 38. gr. Til fyrnefndu skilgerðar- innar þarf auðvitað atbeina b'3ggja foreldra, en til hinn- ar síðarnefndu eimmgis umsókn föður og samþykki barns- ins eða lögráðamanns þe s. Það er skilyrði fyrir hvorri skilgerðinni sem er, að telja megi barnið ávöxt af utan-

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.