Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 29

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Síða 29
Norrænu samningalögin. Neí'nd sú, sem Danir, Norðmenn og Svíar skipuðu, til þess að vinna að samræmi í kröfuréttarlöggjöf sinni, kom á árunum 1913 og 1914 fram með frumvörp til laga um samninga og aðra löggjörninga í fjármálaréttinum. Prumvörp þessi voru lögtekin hvert í sínu landi, hið sænska 1915, hið danska 1917 og hið norska 1918. Norð- menn gáfu lögunum annað heiti en nefndin, og heita norsku lögin: lög um samningsgjörð, mnboð og ógildar vilja-yfir- lýsingar (lov om avslutning av avtaler, om fuldmagt og orn ugyldige viljés-erklæringer). Á það nafn betur við efni laganna en annars er enginn verulegur efnismunur á þess- um þremur lögum. Eins og heiti norsku laganna bendir til, fjalla lögin aðallega um þessi þrjú ati’iði, samnirigsgjörð, umboð og ó- gildar vilja-yfirlýsingar. Þau eru í 4 kapítulum og eru 3 liinir fyrstu hver um sitt þessara atriða. I 4. kapítulanum eru nokkur almenn ákvæði. Astæðurnar til þess, að þessi þrjú ati-iði ein, voru tekin til meðferðar, voru nokkuð nris- munandi. Pyrstu tvö atriðin, um samningsgjörð og umboð, máttu heita að vera alveg ólögákveðin. Hinsvegar voru til nokkuð fastar venjureglur um þau. Vildi nefndin lög- festa suinar þær reglur. Pyrstu tveir kapítular laganna eru því lítið annað en lögfesting á reglum, er áður voru taldar gilda án lieimildar í lögum, en fá nýrnæli eru í þeirn. Um þriðja kapítulann, ákvæðin um ógildar vilja- yfirlýsingar, er nokkuð öðru máli að gegna. Lagaákvæði Norðurlandaþjóðanna um þau efni voru flest gömul, sett þegar réttarhugmyndir manna og þjóðfélagshættir voru allt aðrir en nú. Það hafði sýnt sig að þau fullnægðu ekki

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.