Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 41

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Page 41
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 215 g a g n v a r t i ð n h r i n g u m o g s a m s t e y p u m (kartel- ler og truster). Málshefjandi var dr. T li v. A a r u m pró- fessor við Kristjaníuháskóla. Taldi hann nauðsynlegt, að ríkið hefði állviðtæk afskifti af slíkum samtökum meðal atvinnurekenda, er miðuðu að því að koma á einokun í einhverri grein. í Bandaríkjum Norður-Ameríku hafa fyr- ir löngu verið sett lög um „trusta“ og bæði í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hafa verið til umræðu frumvörp um eftirlit með slíkum fyrirtækjum. Aðgerðir ríkisvaldsins gagnvart hringunum geta verið með ýmsu móti, svo sem lögboð um, að stofnun og starfræksla þeirra sé birt al- menningi, bann gegn vissum starfsaðferðum, umbætur á félaga- og skattalöggjöfinni, ennfremur tollbreytingar og loks þjóðnýting, ef um algerða einokun er að ræða. Síð- ustu leiðina taldi hann samt ekki færa nema í einstökum tilfellum. Aftur á móti liallaðist hann að því, að verðlag og ágóði slíkra fyrirtækja væri takmarkað með íhlutun hins opinbera, ekki þó með hámarksverði, heldur þannig að ágóðinn mætti vera því meíri í samanburði við það fé, sem lagt hefði verið í fyrirtækið, sem verðið væri lægra, svo að það væri í eigin hag fyrirtækisins að leit- ast við að liafa verðið sem lægst, en því meiri sölu. Flestir sem þátt tóku í umræðunum, tóku í þann streng, að eftirlit af liálfu hins opinbera væri nauðsynlegt með slíkum fyrirtækjum, en um það greindi menn á, hvernig þvi skyldi haga, og ekki fékk uppástunga málshefjanda um takmörkun á ágóða og verði mikinn byr. Annað umræðuefnið var s æ n s k a a t v i n n u 1 e y s i s- p ó 1 i t í k i n á k r e p p u á r u n u m. Málshefjandi var 011 o .Járte skrifstofustjóri í Stokkhólmi. I Svíþjóð hefir verið fyigt' öðrum meginreglum í þeim efnum heldur en ann- arsstaðar á Norðurlöndum og hefir þótt gefast vel. Gagn- stætt því sem t. d. hefir átt sér stað í Danmörku, þar sem aðaláherslan hefir verið lögð á atvinnuleysistryggingu, að tryggja mönnum styrk eða dagkaup, ef atvinnuleysi verður í einhverrí grein, þá liefir í Svíþjóð aðaláherslan verið lögð á að veita mönnum vinnu. Hefir í því skyni

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.