Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 44

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.12.1923, Blaðsíða 44
218 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. hæð, ætti hann að greiða mjög stighækkandi skatt, en lægri af því sem hann legðí fyrir. Jafnframt ætti að leggja þyngri skatt á þann hluta af ágóða atvinnufyrirtækja, sem greiddur væri hluthöfum heldur en þann sem lagður væri í sjóð. I umræðunum á eftir var bent á ýms tormerki á slík- um neyslutekjuskatti, sem málshefjandi gerðist talsmaður fyrir, en allir voru sannnála um, að nauðsynlegt væri að gæta varhuga við því, að skattálögurnar drægju mjög úr fésöfnuninni. Siðasta umræðuefnið var um s t ö ð u b a n k a n n a í þ j ó ð b ú s k a p n u m o g h v e r s u v í ð t æ k t e f t i r- 1 i t o g í h v e r r i m y n d h i ð o p i n b e r a æ 11 i a ð lial'a með bankastarfseminni. Málshefjandi var Karl Rascli bankastjóri í Kristjaníu. Sagði hann, að skilyrðið fyrir því, að hið opinbera gæti haft et'tiriit með bankastarfseminni væri það, að löggjöfln setti sérstakar skorður fyrir stofnun bankanna, fyrirkomulagi þeirra og starfsemi. Rakti hann það mál rækilega aðallega á grund- velli frumvarps um hlutafélagabanka, sem nú er á döfinni í Noregi. Er þar gert ráð fyrir, að liið opinbera hafi raun- verulegt eftirlit með bankastarfseminni, því að bankaeft- irlitsstofnunin á ekki einungis að rannsaka reikninga bank- anna og önriur skilríki, sem henni eru send, heldur á hún líka að framkvæma rannsóknir í bankanum sjálfum á á- standi hans og starfsemi. Bæði málshefjandi og síðari ræðumenn voru sammála um, að bankalögumun og banka- eftiiiitinu bæri að haga þannig, að bankarnir fengju að halda eðlilegu athafnafrelsi og að forðast bæri að valdið yflr bankastarl'seminni flyttist frá bankastjórunum, sem á- byrgðina bera, yfir á opinbera eftirlitsstofnun, sem ekki gæti verið fær um að taka það á sig. Ráðgert er að næsta hagfræðingamót Norðurlanda verði haldið í Kaupmannahöfn árið 1926.

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.