Hugur - 01.01.1989, Qupperneq 11
HUGUR
ÞORSTEINN GYLFASON
endanlega ráðningu á öllum gátum heimspekinnar. Og ef
þessi trú mín er rétt, þá er síðari ástæðan til þess að bók mín
er einhvers virði sú að bókin sýnir hve lítið er unnið við að
þessar gátur séu ráðnar.
Vínarborg 1918 L.W.8
Wittgenstein breytti samkvæmt þessari niðurstöðu og lagði
alla heimspeki á hilluna.9 Hann var búinn með hana, og nú
gerðist hann bamakennari í fátæku sveitaþorpi í Austurríki.
Þetta vom mikil umskipti að mörgu leyti. Hann var auðmanns-
sonur: faðir hans hafði verið einn af helztu iðjuhöldum
austurrísk-ungverska keisaradæmisins, og fyrir styrjöldina
hafði sonurinn lifað samkvæmt því. Það var til dæmis til þess
tekið hér á Islandi hvað hann og ferðafélagi hans David Pinsent
bámst mikið á, og það var Wittgenstein einn sem stóð straum
af ferðinni.10 (Þess má geta um David Pinsent að hann féll í
styrjöldinni, og Rökfræðileg ritgerð um heimspeki er helguð
minningunni um hann.) En þegar Wittgenstein tæmdist
föðurarfur gaf hann hvem einasta eyri: hann veitti, án þess að
láta nafns síns getið, tveimur fremstu skáldum síns tíma, þeim
Rainer Maria Rilke og Georg Trakl, mikla styrki,11 en bað
annars systkini sín að taka við fénu. Hann taldi að þau væm svo
auðug fyrir að eilítið meira fé mundi ekki spilla þeim meira en
orðið væri, sem væri stór hætta fyrir alla aðra. Sjálfur hélt
hann ekki öðmm eignum en fjallakofa sem hann hafði byggt
sér í Noregi sumarið. 1914.
Barnakennsluna stundaði hann í sex ár og varð síðan
garðyrkjumaður í klaustri einu í Vínarborg og vildi um skeið
gerast munkur þar innan múra. Næst gerðist hann húsameistari
8 Ludwig Wittgenstein: Tractatus Logico-Philosophicus, bls. 2-5.
9 Um ævi Wittgensteins má mjög víða lesa, til dæmis eru æviágrip í
mörgum bókum sem skrifaðar hafa verið um heimspeki hans. Nú er að
koma út fyrsta meiri háttar ævisaga hans. Fyrsta bindið kom út 1988:
Brian McGuinness: Wittgenstein a Life: Young Ludwig 1889-1921,
Duckworth, London 1988.
to A.C. Grayling: Wittgenstein, Oxford University Press, Oxford og
New York 1988, 5; Brian McGuinness: Wittgenstein a Life: Young
Ludwig 1889-1921, bls. 135-136.
11 Georg Henrik von Wright: „A Biographical Sketcli" í Wittgenstein,
University of Minnesota Press, Minneapolis 1983, 23n.
9