Hugur - 01.01.1989, Page 62

Hugur - 01.01.1989, Page 62
SIÐFRÆÐI KANTS OG AFSTÆÐISHYGGJA HUGUR menn lentu í röklegri mótsögn ef þeir vildu að forsendur rangrar breytni yrðu að almennum löguin eða reyndu að réttlæta verk sem eru siðferðilega röng. Menn hafa og verið iðnir við að benda á að engin formleg mótsögn sé í því fólgin að vilja að allt fari til andskotans og óréttlætið vaði uppi. Ekki er alls fyrir það að synja að Kant gefur þessari túlkun undir fótinn. Eg held þó að hún geti tæpast verið rétt og held að hægt sé að fá meira vit í það sem hann segir um mótsagnir með því að taka tillit til kenningarinnar um fyrirmyndir [Ideale] í Gagnrýni hreinnar skynsemi. Þess ber að geta að orðið sem Kant notar og er iðulega þýtt með „mótsögn“ er „Widerspruch“, sem getur að vísu þýtt mótsögn en getur líka þýtt andmæli, þræta eða ósætti. Rétt er og að geta þess að í tilvitnuninni hér á undan segir Kant ekki að forsendumar [die Maxime] sem um ræðir feli í sér mótsögn heldur að með því að vilja að þær verði að almennum lögum andmæli viljinn sjálfum sér [sich selbst widersprechen wíirde]. Enn er rétt að geta þess að sá vilji sem Kant fjallar um er ekki sálargáfa sem er aðgreind frá skynseminni, heldur sú hlið skynseminnar sem heitir siðvit [praktische Vernunft]. Þessi vilji er partur af þeirri skynsemi sem sífellt kallar á fullkomn- un. I ljósi þessa getum við skilið hvað Kant á við þegar hann talar um að viljinn andmæli sjálfum sér, sé ósáttur eða í mót- sögn við sjálfan sig. Ósættið eða mótsögnin felst í því að hann krefst fullkomnunar en reynir þó að réttlæta forsendur sem stangast.á við þessa fullkomnun. Af þessu verður innra ósætti, mótsögn, þræta eða „Widerspruch“. Til að skýra þelta nánar skulum við átta okkur á því að Kant taldi að skynsemin væri f eðli sínu óvilhöll. Mann kann að dreyma um eitthvað sjálfum sér til handa og hreppa það með því að ganga á hlut annarra, en skynsemin segir honum að gera ekki upp á milli sín og annarra heldur fylgja þeim lögum sem hann vill að aðrir fylgi. Líti hann málið undir siðferðilegu sjónarhomi þá lítur hann það augum skynseminnar, í ljósi hug- sjónarinnar um fullkoinnun óháð sérhagsmunum hans sjálfs. Þessi kenning um að skynsemin sé óvilhöll og krefjist sífellt fullkomnunar er grundvöllur hugmyndar Kants um afdráttar- lausa skyldu: 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.