Hugur - 01.01.1989, Side 82

Hugur - 01.01.1989, Side 82
TVENNIR TÍMAR í SIÐFRÆPI DAVÍÐS HUME HUGUR þessum hætti þá skiljum við tilfinningar viðkomandi manns og okkur verður ljóst af reynslunni og af ímynduninni hvað það er að vera í sporum þessa manns. Það er með þessum hætti sem okkur verður ljóst eðli viðkomandi aðstæðna og samhygð okk- ar og umhyggja vaknar. Eg hef hér að framan gert því skóna að kenning Humes um samhygð sé í raun talsvert frábrugðin því sem flestir fræði- menn hafa hingað til talið. Þessari túlkun minni til stuðnings hef ég vísað til nokkurra atriða í skrifum Humes í Ritgerðinni og þykist hafa sýnt fram á að ef kenning Humes er skilin á þennan hátt, þá sé henni kleift að glíma við ýmis gmndvallar vandamál sem áður voru henni ofvaxin. Ilume virðist vera ótrúlega kærulaus í greinargerð sinni fyrir ýmsum vanda- málum sem blasa við lesandanum og jafnvel honum sjálfum. En að mínum dómi gerir hann sér fulla grein fyrir þessum missmíðum og honum verður ljóst að þær verða aðeins bættar með endurskoðun á greinargerðinni fyrir samhygð. A endan- um telur hann sig hafa komið auga á þær endurbætur sem gera þarf til þess að dæmi hans gangi upp. En framsetning hans á þessum endurbótum er ómarkviss og því virðist hann kæru- laus. Allt þetta styður túlkun mína, að ég held, og í skrifum Humes er að finna ótal mörg önnur dæmi sem styðja þessa túlkun þótt ekki verði þau tilgreind hér. I næsta hluta reyni ég að færa rök fyrir túlkun minni með nokkuð öðru móti, nefnilega með því að sýna fram á að ef meðferð Humes á samhygðarhugtakinu í Ritgerðinni er með þeim hætti sem ég hef reynt að sýna fram á, þá er samhygðar- hugtakið eins og við þekkjum það úr Ritgerðinni ekki leyst af hólmi í Rannsókninni með hugtakinu góðvild. Ég vil þess vegna halda því fram að greinargerð Humes hér að lútandi sé í grundvallaratriðum hin sama í báðum bókunum, enda væri annars ekkert samræmi á milli þeirra. II í inngangi sínum að riti Humes, Rannsókn á undirstöðum siðferðisins, heldur ritstjórinn L.A. Selby-Bigge fram þeirri skoðun, sem allar götur síðan hefur verið álitinn réttmætur skilningur á Hume, nefnilega að í þessu seinna riti taki 80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.