Hugur - 01.01.1989, Side 93

Hugur - 01.01.1989, Side 93
HUGUR RITDÓMAR hvorki „vareygðarsamlega" (82), „linfelduglega" (82), „nasvís“ (76), „langsemi" (58), „herkjur" (54) né „pláts“ (34) - allt orð sem kunna að þarfnast skýringar. Texti Þorleifs Halldórssonar er merkur og að meirihluta bráð- skemmtilegur aflestrar. Er það lofsvert ffamtak að gefa hann nú út f röð Lærdómsrita. Þó að alltaf sé hægt að elta ólar við smá- og smekksatriði virðist mega fullyrða að verkið er vandað frá hendi útgefenda. Ámi Siguijónsson GOTTLOB FREGE UNDIRSTÖÐUR REIKNINGSLISTARINNAR íslensk þýðing eftir Kristján Kristjánsson með forspjalli eftir Guðmund Heiðar Fnmannsson Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 1989. Á síðasta ári kom út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags ritið Undirstöðurreikningslistarinnar (áfrummáli: Grundlagen der Arithmetik) eftir þýska stærðfræðinginn og rökfræðinginn Gottlob Frege (1848-1925) í íslenskri þýðingu Kristjáns Kristjánssonar og með forspjalli eftir Guðmund Heiðar Frímannsson. Gottlob Frege, sem lengst af var stærð- fræðikennari við háskólann í Jena (nú í Austur-Þýskalandi), er af flestum talinn faðir nútímarökfræði og rökgreiningarheimspeki og af sumum jafn- vel merkasti heimspekingur þessarar aldar. Þar sem ofangreint rit er eitt mætasta heimspekirit Frege er þetta framtak í hæsta máta lofsvert og þeim mun heldur, þar sem það er eina rit hans, sem hingað til hefur komið út í íslenskri þýðingu. Rit Frege hlutu ekki verðskuldaða viðurkenningu á meðan hann lifði, en á síðustu áratugum hefur hann fengið „uppreisn æru“, og er þar einkum að þakka hinu mikla riti Michaels Dummett, heimspckiprófessors við Oxfordháskóla, Frege, sem fyrst kom út árið 1973. í kjölfar þessarar bókar fylgdi röð athyglisverðra rita og greina um Frege og kenningar hans. Áður var Frege einkum talinn áhugaverður vegna áhrifa sinna á Bertrand Russell og Ludwig Wittgenstein. Russell skrifaðist á við Frege og varð einna fyrstur manna til að lesa rit hans og skilja hversu frumlegar og mikilvægar kenningar Frege eru. Þótt Russell sé frægari heimspeking- ur meðal almennings en Frege, sennilega einkum vegna baráttu sinnar gegn kjarnorkuvígbúnaði og bóka sem hann skrifaði á efri árum um þjóð- félagsmál, er Frege nú af flestum atvinnuheimspekingum talinn dýpri hugsuður, a.m.k. í fræðilegri heimspeki, sökum framlags síns til rökfræði og málspeki. Frege hafði jafnvel djúptækari áhrif á Wittgenstein en Russell, og ókleift er að skilja fyrsta heimspekirit Wittgensteins, Tractatus 91
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.