Hugur - 01.01.1989, Side 102

Hugur - 01.01.1989, Side 102
RITDÓMAR HUGUR sannleikanum en með kenningunum sjálfum (218). Þessi skoðun fellur vel að þrískiptri flokkun hans og Everitts á árangursríku vísindastarfi í tilgátur, útreikninga og tilraunir (212), í stað hefðbundinnar tvískiptingar í kenningasmíði og tilraunastarf. Kenningarnar birtast ekki alskapaðar held- ur þarf að útfæra þær á flókinn hátt sem vfsindamennirnir gera í hvunn- dagsstarfi sínu. Það sem er sérstakt við nútíma eðlisvísindi er að þar sam- einast þessi þrískipting, t.d. í starfi eðlisfræðinga (248 - 9). Pierre Simon Laplace (1749 - 1827) er dæmi um afburðamann á sviði útreikninga. Frægð Isaac Newtons (1642 - 1727) er byggð á yfirburðum hans sem tilgátusmiðs og meistara á sviði útreikninga en hann var einnig vel liðtækur við tilraunir. Það er hins vegar fátítt að menn séu snjallir á svona mörgum sviðum samtímis. Hacking boðar verufræðilega hluthyggju m.a. vegna þess að unnt er að beita hlutum eins og rafeindum sem tækjum við að meðhöndla náttúr- una. Hann segist hafa sannfærst um það að rafeindir væru raunverulegar þegar hann frétti um tilraunir við Stanford háskóla þar sem leitað er að hleðslu kvarka. Samkvæmt nútímakenningum á hún að vera þriðjungsbrot af hleðslu rafeindarinnar (-e), þ.e. +/- 1/3 e eða +/- 2/3 e. Tilraunin líkist að sumu leyti frægri tilraun Robert A. Millikans (1868 - 1953) til að finna hleðslu rafeindarinnar snemma á öldinni. Rafeindum og jáeindum (+e) er sprautað líkt og úr málningarbrúsa á kúlu úr efninu níóbíum sem svífur í lausu lofti í segulsviði við mjög Iágt hitastig. Ef stakir kvarkar eru fyrir hendi ættu sumar kúlurnar að sýna hleðslu er stæði áþriðjungsbroti af e. Því segir Hacking um hluti: „Ef það er hægt að mála með þcim, þá eru þcir raunverulegir" (22 - 4). Ilann áréttar þessa skoðun í lokakafla bókarinnar (262-75) þar sem hann fjallar um notkun skautaðra rafeinda í tilraunum á seinasta áratug við leit að speglunarrofi („parity violation") f veikri víxlverkun óhlaðins straums („weak neutral current interactions"). Þar er rafeindum og eiginleikum þeirra beitt sem tækjum til að kanna áður óþekkt svið efnisheimsins.7 Það er rauður þráður í bókinni að mikið af starfi tilraunaeðlisfræðinga felist í því að ná valdi á útbúnaðinum og fá hann til að verka. Þeir neyðast til að vera hluthyggjumenn þó að útreikningsmenn og tilgátusmiðir geti leyft sér að vera mótfallnir þeirri skoðun. Þegar fjallað hefur verið um vísindaþróun frá sjónarhóli kenninga hefur það nefnilega viljað gleymast að tilraunir hcppnast yfirleitt ekki í fyrstu atrennu. Styrkur góðra tilrauna- eðlisfræðinga er oft sá að þeir gjörþekkja tækjabúnaðinn og geta því scitt ákveðin fyrirbæri úr fylgsnum náttúrunnar (220 - 232).8 Það geta þeir gert hvort sem þeir hafa einhverjar kenningar að leiðarljósi eður ei. Því er rangt að álykta að allar athuganir séu þrungnar kenningum. Uppgötvun William Herschels (1738 - 1822) á hitaútgeislun aldamótaárið 1800 er til vitnis um það. Eftir að hafa uppgötvað útgeislunina reyndi Herschel að fella frekari rannsóknir á henni að ljósfræðikenningu Newtons. Það hafði hins vegar lítil áhrif á rannsóknir hans sem fóru mestmegnis fram á tilraunasviðinu (176-8). Fróðlegt er að bera þá saman, Hacking og Thomas Kuhn. Hacking veitir skrifum vísindasagnfræðingsins Kuhns verðskuldaða athygli enda svipar þeim saman að því leyti að Hacking hefur unnið jöfnum höndum í vísindaheimspeki og vísindasagnfræði eins og Kuhn. 100
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.