Hugur - 01.01.1989, Side 104

Hugur - 01.01.1989, Side 104
RITDÓMAR HUGUR skrifaði yfir á nútímamál. í þessu sambandi stingur Hacking upp á hugtakinu rökfærsluaðferðir („styles of reasoning").13 Dæmi um ólílcar aðferðir við rökfærslu er dálæti Fom-Grikkja á frumsetningum (sbr. Frumþætti Evklíðs), mikilvægi tilraunastarfsemi á 17. öld og síaukin notkun tölfræðilegra aðferða á seinustu tveimuröldum.14 Frá því að bók Hackings kom út hafa rannsóknir vísindasagnfræðinga beinst enn frekar að daglegu starfi vísindamanna og mikilvægi tilrauna- starfsemi. Afrakstur þessarar vinnu birtist nýlega í tímaritinu Isis, sem er undirstöðutímarit í vísindasagnfræði. Þar skrifar Hacking m.a. grein um notkun líkindafræði í sögu sálarrannsókna.15 Helst mætti finna það að bók Hackings að hún er að mestu einskorðuð við sögu eðlisvísindanna. Sögu náttúrufræði og líffræði er veitt minni athygli en skyldi þótt hann fari örlftið út í þá sálma í kafla um notkun smá- sjárinnar og hvað menn geti séð með henni (186 - 209). Einnig er ekki nægilega ljóst hvaða skoðanir Hacking hefur á hlutverki stærðfræðinnar í þvx flókna samspili tilgátna, útreikninga og tilrauna sem hann fjallar um. Hann er ekki einn undir þá sök seldur, því vísindasagnfræðingar hafa hingað til ekki hugleitt það sem skyldi á hvaða hátt stærðfræðin hafi mótað þróun eðlisvísindanna. Er stærðfræðin einungis handhægt tæki sem eðlis- fræðingar grípa til þegar þeim hentar eða setur stærðfræðin því strangar skorður hvaða vandamál er mögulegt að fást við á sviði eðlisfræðinnar? Hacking gagnrýnir vísindaheimspekinga sem hafa ekki gefið því nægilegan gaum hve vísindin hafa orðið til á flókinn og margbrotinn hátt: heimspekinga sem hafa búið til múmíu úr vísindunum. Bók hans sýnir ljóslega mikilvægi þess að vísindaheimspekingar og vísindasagnfræðingar vinni saman og að vísindaheimspekingar forðist að byggja skoðanir sínar á sögulegum einföldunum. Lýsing hans á tilraunastarfsemi og hugmyndir hans um rökfærsluaðferðir og verufræðilega hluthyggju sýna glöggt hvað þetta samstarf getur verið frjótt. Skúli Sigurðsson16 1 Nancy Cartwright: How the Laws of Physics Lie, Oxford University Press: Oxford 1983. 2 Everitt hefur einnig skrifað talsvert í vísindasögu. Sérstaklega er bent á grein hans um James Clerk Maxwell (1831-1879) í Dictionary of ScientificBiography9, 1974, bls. 198-230. 3 Thomas S. Kuhn: The Structure of Scientific Revolutions, The University of Chicago Press: Chicago og London 1962, önnur útgáfa, endurbætt 1970. 4 Sjá grein hans: „Professionalization Recollected in Tranquility", Isis 75, 1984, bls. 29-32. 5 Peter Galison fjallar um þessa einingarskoðun í vísindaheimspeki og hnignun hennar f greininni: „History, Philosophy, and the Central Metaphor", Sciencein Contextl, 1988, bls. 197-212. Sjá einnig grein 102
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.