Búnaðarrit - 01.06.1940, Qupperneq 23
BUNAÐARRIT
XV
bændur á íslandi, 2 bændur í öðrum löndum, 10 hafa
ýms önnur störf á höndum og einn er ófær lil vinnu,
sökum heilsubrests. Af þeim sem dánir eru, voru að
minnsta kosti 4 bændur, að ógleymdum ágætismönn-
unum: Bergi Helgasyni, skólastjóra á Eiðum og Bene-
dikt Blöndal, kennara á Hallormsstað.
VI.
Hjörtur var glaður og gamansamur á heimili, og
hafði spaugsyrði á hraðbergi við flest tækifæri. Ekki
latti hann nemendur sína að reyna með sér í glímu eða
aflraunum. Stundum kom það fyrir, ef honum tókst
ekki að fá ökkur lil að takast á, að hann flaug sjálfur
á þá tvo sem hann vildi láta fara saman. Þurfti hann
ekki að nota nema aðra höndina við hvorn. Varð
þella æfinlega hin bezta skemmtun, og aldrei koni
það fyrir, að neinn okkar meiddist i þessum ærslum.
Eitt var sem einkenndi Hjört, umfram flesta aðra
menn, sem ég hefi kynnzt: Hann var framúrskarandi
barngóður. Aldrei átti liann svo annríkt, að hann gæfi
sér ekki tíma til að tala við börn, sem urðu á vegi
hans. Ef til vill sýnir þetta betur en flest annað,
hver maður hann var.
Þess er vert að geta, að svo voru þau hjúasæl,
H jörtur og Ragnheiður, að sumt af því fólki, sem búið
var að vera hjá þeim mörg ár á Hvanneyri, fór með
þeim að Skeljabrekku og svo þaðan aftur að Arnar-
holti, er þau fluttu þangað vorið 1915.
VII.
Vorið 1907 fór Hjörtur frá Hvanneyri. Keypti hann
þá Ytri-Skjeljabrekku í Andaldl og reisti þar bú. Þótt
liann væri farinn að bila á lieilsu eftir allt erfiðið,
sem hann hafði lagt á sig á Hvanneyri, verður ekki
sagt, að hann settist nú í helgan stein. Hér þurfti að
byggja öll hús frá grunni, fyrst yfir fólkið og svo yfir