Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 76

Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 76
176 BÚNAÐARRIT lega uppskeru fyrir bragðið. Sérstaklega spírar Alpha seint, en hún geyniist líka flestum kartöflum betur. Þessi afbrigði virðast eiga framtíð í lágsveitum sunn- anlands, ásamt Gullauga, sem er þétt kartafla og mjölvismikil, líkt og rauðu íslenzku kartöflurnar. Gullauga gefur árvissari uppskeru en þær að jafnaði og er sæmilega bráðþroska. Getur þetta afbrigði smám saman leyst þær af hólmi, einnig norðanlands. í hlýviðrunum 1939 þreifst myglusveppurinn ágæt- lega eins og annar gróður. Komst kartöflumyglan þá í algleyming á Suðvesturlandi og hennar varð jafn- vel vart norðanlands og vestan. Sá ég greinilega myglusýki í Up-to-date-kartöflum frá Akureyri, og í rauðum íslenzkum kartöflum af heimaöldum stofni i Sauðlauksdal á Vestfjörðum. Er myglan sennilega til víða um land, en hennar gætir mest sunnanlands vegna veðurfarsins þar, sem er rakara og jafnhlýrra en norðanlands. í sumar varð myglu allvíða vart, en veikin gerði lítinn usla, svalviðrin sáu fyrir því, ásamt varnarúðun, sem nú er allvíða farið að hafa um hönd á Suðurlandi. Er notkun varnarlyfja þar sjálfsögð oryggisráðstöfun. Versti kartöflukvillinn í sumar var stöngulveilci. Gerði hún víða talsvert tjón; dró úr upp- skeru og veldur eflaust skemmdum í geymslu í velur. Þegar veikin er á háu stigi eru einkennin glögg: Stönglar kartöflugrasanna verða svartir, blautir og linir niður við moldina. Toppur grasanna gulnar einn- ig oft og blöðin krypplast eða vefjast ögn saman. Er þelta ofllega fyrsta einkennið. Að vetrinum lifa slöngulveikisbakteríurnar í kartöl'lunum. Mesta hætt- an stafar þess vegna frá sýktu útsæði. Einnig getur veikin stundum haldizt við í kartöflum, sem lifa af veturinn í görðunum. Er helzt hætta á því í heitum jarðvegi. Erfitt reynist að útrýma veikinni að fullu og öllu, því að einkennin eru stundum óglögg, sé veikin á lágu stigi. Á hinn bóginn er hirðuleysi um

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.