Sunna - 01.10.1932, Síða 26

Sunna - 01.10.1932, Síða 26
22 S U N N A hvelfist svo himininn heiður og blár yfir þau. Með ströndinní er skerjagarður. Brotnar sjórinn á skerjunum og faldar hvítu. Er það falleg sjón að sjá brimið, þegar það er í algleymingf og sýnir hina miklu fegurð, sem það hefir til að bera. — Jón Jónsson (13 ára), Stokkseyri. Brúðusaga. Þegar ég var sex eða sjö ára gömul, lék ég mér með leik- systrum mínum. Þær voru flestar eldri en ég, ein var þó jafngömul mér og vorum við oftast saman. Þær eldri léku sér með brúður. Það voru litlar glerbrúður, og langaði okkur til að leika okkur að þeim, en þær vildu það síður, því að þær sögðu, að við skemmdum þær fyrir sér. Þó fengum við oft að vera með þeim, en við urðum að sitja kyrrar og horfa á. Okkur þótti gaman að skoða dótið þeirra, því að það var fallegra en okkar, þær fóru betur með það en við. Þær bjuggu sér til lítil hús úr pappakössum og höfðu eldspýtu- stokka fyrir borð og bjuggu til dúka, sem þær klipptu úr bréfi. Við fórum í veizlur til þeirra, þegar þær skírðu brúð- urnar sínar. Veizlan var haldin í forstofunni þar sem ég átti heima. Amma mín gaf okkur stundum tíu aura, og geymdum við þá, þangað til einhver brúðan átti afmæli. Fórum við þá út í búð og keyptum eitthvað fyrir þá, og oftast var það skyr, því að okkur þótti það þá svo gott, og amma gaf okkur líka mjólk. Ég átti lítið borð, sem frænka mín hafði gefið mér, og notuðum við það, þegar við héldum veizlurnar, og átti ég líka blikk-matarstell, sem rnér hafði verið gefið á afmælinu mínu. Ég fékk ekki að leika mér að þvi nema stundum. Brúðurnar áttu oft á ári afmæli, ef þær entust svo lengi. Ég átti litla brúðu, sem ég var búin að eiga nokkuð lengi. Eitt sinn er ég var með hana úti, missti ég hana á stein og höfuðið fór í marga parta. Þá fór ég að orga, því að mér þótti svo vænt um hana. Þegar ég hætti því, fórum við að jarða hana. Við tíndum blóm og létum hjá henni, svo vöfðum við hana í bréf og sungum svo Eldgamla Isafold. —

x

Sunna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunna
https://timarit.is/publication/612

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.