Sunna - 01.10.1932, Side 31
S U N N A
27
Kalli: Miklu, miklu hærra, ef þú átt við Snæfellsjökul.
Brandur: Hærra en hæsta fjallið á íslandi.
Kalli: Miklu hærra. Hæsta fjallið heitir Öræfajökull. —
Farðu á fjóra fætur. Liggðu alveg á hnjánum og höndunum,
skjóttu upp kryppu og vertu Öræfajökull. Svo ætla ég að
sýna ykkur hvað flugvélin fór hátt. Það þarf þrjá Öræfajökla,
hvern ofan á annan, til þess að það verði eins hátt og flug-
vélin fór.
Brandur leggst á fjóra fætur.
Kalli: Komdu, Gvendur. Farðu upp á bakið á honum
Brandsa og vertu annar Öræfajökull.
Gvendur: Má ég liggja með hnén uppi á bakinu á honum?
Kalli: Já, já.
Gvendur: Má ég halda mér í hálsmálið?
Brandur: Nei, nei.
Kalli: Bara leggja flata lófana á herðarnar. Komdu Geiri,
skríddu upp eftir bakinu á Gvendi og vertu líka Öræfajökull.
Geiri reynir að klifra.
Brandur: Æ, æ, strákar, strákar! Eg vil ekki vera neðsti
Öræfajökullinn. Eg verð að klessu. Geturðu ekki sýnt okkur
þetta öðruvísi.
Kalli: Þú þolir þetta víst. Lofaðu Geira að komast alla
leið upp, teygðu svo fram höfuðið og reyndu að horfa á mig.
Eg ætla að leika Hollendingana fljúgandi.
Geiri kemst upp á bak Gvendar.
Kalli: Agætt. Höfuðin fram. Horfið á mig.
Brandur: Fljótur; fljótur.
Kalli: (fer í marga hringa kringum drengina, fyrst á fjór-
um fótum, svo hálfuppréttur, að síðustu baðandi út hand-
leggjunum). Gúrr - úrr-úrr - úrr - irr- irr-burr-urr-urr-dirr-irr-irr-
darr-arr-arr-gúrr-úrr-úrr-úrr. Sjáið þið, nú er flugvélin komin
upp fyrir jökulinn. Ég held, að það sé annars bezt að setj-
ast á toppinn.
Kalli hossar sér ofan á Geir og hrópar um leið:
Skriðjökull, skriðjökull . . . Drengirnir veltast á gólfið og
kalla: Skriðjökull, skriðjökull. G. M. M.