Sunna - 01.12.1932, Síða 4
68
S U N N A
gerðist líka frægastur myndhöggvari
samtíðar sinnar. Og hann var Is-
lendingur í föðurætt.
Verðlaunamynd Sigurjóns er verka-
maður með haka, í meira en fullri
líkamsstærð — ímynd vinnuþreksins.
Listasafn íslenzka ríkisins hefir keypt
þá mynd.
Atburður þessi vakti geysilega at-
hygli í Danmörku. Sigurjón var aðal-
umræðuefni blaðanna næstu dagana.
Og hamingjuóskum og heimboðum
rigndi yfir hann úr öllum áttum.
Haustið 1931 fór Sigurjón til Ítalíu
og hefir lengst af dvalið í Róm síð-
an, þar til nú í lok nóvembermánað-
ar, að hann kom til Kaupmanna-
hafnar og tekur þátt í haustsýningu
listamanna þar. Hefir hann gert tvær
stórar líkneskjur í Róm. Onnur er
af blindum manni, en hin af móður
með barn, og fylgja hér tvær myndir
af henni. Hún er gerð úr steinsteypu.
— Hér er og mynd af Verkamann-
inum og annari standmynd, sem hann
gerði á námsárunum í Höfn. — Vafalaust á Sigurjón eftir
að vinna íslandi mikla sæmd, ef honum endist aldur og heilsa.
»Sunnu« þykir eiga vel við, að skreyta forsíðu jólaheftis
síns með mynd Sigurjóns, af móður með barn. Hún er vel
fallin til þess að beina hugsun okkar til móðurinnar og
barnsins, sem minnzt er á jólunum. A. S.
S. Ó.: Móðir með barn.