Melkorka - 01.12.1949, Síða 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjárn:
Nanna Ólafsdóttir, Skeggjagötu 1, Reykjavik, sími 3156 ■ Svafa Þórleifsdóttir, Hjallaveg 14, Reykjavik, simi 6685
Þóra Vigfúsdóttir, Njálsgötu 72, Reykjavík, sími 5199
Útgefandi: Mál og menning
Gamalt og nýtt til þrifnaðar og þæginda
Eftir Rannveigu Kristjánsdóttur
I sumar þegar sólin skein lofaði ég að
skrifa eitthvað um byggingasýningu, sem þá
stóð yfir í Gautaborg og ég hlakkaði til að
sjá, en svo fór ég að skoða sýninguna og
fannst mér þá ekki vera um ýkjamikið nýtt
að ræða.
Þarna var jrá fyrst mikill fróðleikur um
byggingarefni og byggingaraðferðir, og svo
var gerð grein fyrir byggingarpólitík Svía.
Þar var yfirlit yfir skipulag bæjarhverfa.
Svo voru sýndar nokkrar tveggja, jniggja og
fjögurra herbergja íbúðir búnar húsgögn-
um frá ýmsum húsgagnaverzlunum. Rann-
sóknarstofnun heimilanna sýndi eldhús
„dagsins og morgundagsins". Þar að auki
voru alls konar auglýsingadeildir, sem
sýndu efni til húsagerðar og áhöld til heim-
ilisnotkunar.
Ekki treysti ég nrér til að gera grein fyrir
hinum hreint faglegu deildunr unr efni og
byggingaraðferðir. Um byggingarpólitíkina
er það að segja, að hér unr bil allt, sem lrér
er byggt, er stutt nreð ríkislánum og bein-
um styrkjum. Það eru bæði samvinnubygg-
ingarfélög, privatfyrirtæki og einstaklingar,
sem geta fengið slík lán. Síðustu tvö árin
Rannveig
Kristjánsdóttir
lrafa umsóknir unr lán tif byggingar fjölbýl-
islrúsa skipst hér unr bil til þriðjunga nrilli
samvinnubyggingarfélaga, byggingarfélaga
að einhverju leyti í ábyrgð bæjar- og sveit-
arfélaga, og einkafyrirtækja. Þar fyrir utan
eru lán til einbýlishúsa fyrir barnmargar
fjölskyldur og lán til endurbóta á sveita-
heimilum.
Á hinn bóginn hefur svo leigunni verið
haldið niðri nreð húsaleigulögum og barn-
MELKORKA
75