Melkorka - 01.12.1949, Page 26

Melkorka - 01.12.1949, Page 26
Alþjóðafélagsskapur háskólakvenna Eftir Unni Jónsdóttur Háskólakonur um heim allan hafa með sér félagsskap, er nefnist International Federation of University Women, og hefur félagsskapurinn aðalbækistöðvar sínar í London. Þær halda árlega þing, þar sem einn fulltrúi frá hverju landi mætir, þó senda þau lönd, sem flestar háskólakonur hafa, svo sem Bandaríkin, Bretland, Niður- lönd og Frakkland fleiri en einn fulltrúa. Á þingi þessu ræða háskólakonur sameigin- leg hagsmuna- og vandamál, og reyna að ráða fram úr þeim eftir beztu getu. í ár var 30. alþjóðaþing þetta haldið í Danmörku, í Krogeruphöll á Norður-Sjá- landi og það féll mér í skaut að mæta þar fyrir hönd Kvenstúdentafélags íslands. En áður en ég segi í fáum dráttum hvað þar gerðist, þykir mér rétt að segja ofurlítið fyrst frá félagsskap þessum og tilgangi hans. í lögum félagsins stendur, að tilgangur þess sé að efla skilning og vináttu meðal há- skólakvenna allra landa og á þeim grund- velli að stuðla að sameiginlegum liagsmun- um þeirra. Félagið veitir meðlimum sínum námsstyrki, ferðastyrki, húsnæði í klúbbhús- um kvenstúdentafélaga víða um heim, ýmiss konar upplýsingar og ráðleggingar, svo og sér fyrir, ef mögulegt er, persónulegri kynn- ingu við fólk það, er viðkomandi er gagn af að kynnast. Kvenstúdentafélög víða um heim liafa gengizt fyrir fjársöfnunum til alþjóðastyrkja til vísindaiðkana (International Fellow- ships) og Samband amerískra háskóla- kvenna veitir árlega mjög góða styrki er- lendurn háskólakonum til framhaldsnáms. Má þar nefna 4 árlega styrki við þekktasta Frú Unntur Jónsdóttir kvennaháskóla Bandaríkjanna, Bryn Mawr. Styrkurinn er nú 1250 dollarar, og innifelur húsnæði, fæði, skólagjald, sem sagt allt, nema vasapeninga. Þessir alþjóðastyrkir eru veittir eingöngu eftir hæfileikum umsækjanda, hvaða hör- undslit, trúarbrögð eða stjórnmálaskoðun sem liann hefur, og má nota þá við livern þann háskóla í heiminum, sem umsækjandi liefur aðgang að. Auk þess eru í mörgum löndum styrkir veittir til érlendra liáskólakvenna, er enn liafa ekki lokið prófi. Alþjóðasamband háskólakvenna hefur ávallt barizt gegn því, að háskólakonur yrðu settar lijá við embættaveitingar, og áorkað þar miklu, og fyrir jöfnum launum þeirra á við karlmenn fyrir sömu vinnu. Einnig hef- ur það ávallt hvatt háskólakonur til þess að láta meira til sín taka í þjóðfélagsmálum og alþjóðlegum málum. Þó liefur það síðan á 98 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.