Valsblaðið - 01.05.2010, Qupperneq 6
Það er árviss viðburður hjá Val að
útnefna íþróttamann ársins í hófi að Hlíð-
arenda á gamlársdag. íþróttamaður Vals
er valinn af formönnum deilda, formanni
félagsins og Halldóri Einarssyni (Hen-
son) sem er gefandi verðlaunagripanna.
Árið 2009 var valinn í 18. sinn íþrótta-
maður Vals. Þessi athöfn fór fram í
veislusal Vals að Hlíðarenda að við-
stöddu fjölmenni.
Hörður Gunnarsson formaður Vals hélt
ávarp við þetta tækifæri og sagði m.a.:
„íþróttamaður Vals hefur verið valinn frá
árinu 1992 og er því komið að þessari
útnefningu í 18. sinn. Valnefndin er skip-
uð formönnum allra deilda félagsins, sitj-
andi formanni og tveimur fyrrverandi
formönnum, auk Halldórs Einarssonar
sem hefur verið í valnefnd frá upphafi og
er gefandi verðlaunagripanna. Samtals
hafa 10 knattspyrnumenn hlotið titilinn,
6 handknattleiksmenn og 1 körfuknatt-
leiksmaður, 9 sinnum hefur leikmaður
karlaliðs verið valinn og 9 sinnum leik-
maður kvennaliðs.
Dóra María Lárusddttir er
íþrdttamaður Vals 2009
fþróttamaður Vals 2009 er glæsilegur
fulltrúi félagsins utan vallar sem innan
og einstaklega góð fyrirmynd fyrir æsku
landsins. Samkvæmt heimildum KSÍ hef-
ur íþróttamaðurinn engar skráðar áminn-
ingar á árinu og segir það meira en mörg
orð um viðmót og framgöngu viðkom-
andi íþróttamanns innan vallar. íþrótta-
maður Vals 2009 hefur leikið 184 leiki í
meistaraflokki fyrir hönd Vals og skorað
í þeim 84 mörk, auk þess á íþróttamaður
Vals að baki 54 A-landsleiki og 46 lands-
leiki með yngri landsliðum íslands og
því leikið samtals 100 landsleiki fyrir
íslands hönd. íþróttamaður ársins hefur
með félögum sínum landað 5 íslands-
meistaratitlum og 4 bikarmeistaratitlum.
íþróttamaður Vals árið 2009 var lykil-
maður í sigursælu landsliði íslands á
árinu og lék alla 14 landsleiki tímabilsins
auk þess að vera hvað fremst meðal jafn-
ingja í liði íslands- og bikarmeistara Vals
á liðnu sumri. fþróttamaður Vals 2009
hefur alla tíð sýnt félagi sínu mikla rækt
og tryggð og hefur leikið í búningi Vals
allan sinn feril. íþróttamaður Vals árið
2009 er Dóra María Lárusdóttir.“
Hörður stiklaði einnig á stóru í upp-
gjöri við starfsárið og sagði m.a.: „Árið
2009 hefur verið Knattspyrnufélaginu
Val gjöfult utan vallar sem innan. Sá
árangur sem hæst bar á árinu hjá meist-
araflokkum félagsins var bikarmeistara-
titill meistaraflokks karla í handknattleik
en þáð var annað árið í röð sem félagið
vinnur þann titil en samtals hefur Valur
orðið bikarmeistari í handknattleik karla
sjö sinnum- eða oftar en nokkurt annað
félag hér á landi. Meistaraflokkur kvenna
í knattspymu stóð sig með miklum glæsi-
brag á árinu, en þær hömpuðu bæði bik-
ar- og íslandsmeistaratitli þrátt fyrir að
hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir-
keppnistímabilið. íslandsmeistaratitillinn
var sá níundi, fjórða árið í röð og sá
fimmti á síðustu sex árum - geri aðrir
betur. Bikarmeistaratitillinn var ellefti tit-
ill Vals en Valur hefur orðið bikarmeist-
ari kvenna oftast allra félaga. Auk þess
Viðurkenningar
átti Valur 6 leikmenn í landsliðinu sem er
það sigursælasta sem ísland hefur átt á
knattspyrnuvellinum. Bikarmeistaratitill-
inn var svo 97. titillinn sem Valur hamp-
ar í sínum hefðbundnu greinum eða oftar
en nokkurt félag á íslandi. Á árinu 2009
stóðu í allt 11 titlar til boða í þeim þrem-
ur boltagreinum sem Valur keppir í. Af
þeim hömpuðum við þremur þeirra sem
er frábær árangur eins íþróttafélags.“
íþróttamenn Vals frá uppltafi
2009
Dóra María Lárusdóttir, knattspyrna
2008
Katrín Jónsdóttir, knattspyrna
2007
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2006
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2005
Bjarni Ólafur Eiríksson, knattspyrna
2004
Berglind íris Hansdóttir, handknattleikur
2003
íris Andrésdóttir, knattspyrna
2002
Sigurbjörn Hreiðarsson, knattspyrna
2001
Rósa Júlía Steinþórsdóttir, knattspyma
2000
Kristinn Lárusson, knattspyrna
1999
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir, knattspyrna
1998
Guömundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1997
Ragnar Þór Jónsson, körfuknattleikur
1996
Jón Kristjánsson, handknattleikur
1995
Guörún Sæmundsdóttir, knattspyrna
1994
Dagur Sigurðsson, handknattleikur
1993
Guömundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1992
Valdimar Grímsson, handknattleikur
6
Valsblaðið 2010