Valsblaðið - 01.05.2010, Side 9

Valsblaðið - 01.05.2010, Side 9
að velja íþróttafélag. Viðmið ÍSÍ eru einnig gott aðhald fyrir okkur því það er mikil ábyrgð sem fylgir því að taka að sér íþróttaþjálfun og félagslegt uppeldi barna og unglinga. Það er gaman að geta þess að Valur er eitt örfárra íþróttafélaga í landinu sem hefur hlotið hefur nafn- bótina Fyrirmyndarfélag í öllum deildum félagsins. Sérstaklega ber að þakka Ragnhildi Skúladóttur yfirmanni barna- og unglingasviðs fyrir hennar þátt í þess- um ánægjulega áfanga því hún umfram aðra hafði veg og vanda af þeirri miklu vinnu sem inna þurfti af hendi í svo viða- mikilli úttekt. Öflugir samstarfsaðilar til liðs við Val Þrátt fyrir erfitt árferði átti Valur því láni að fagna á árinu að fá til liðs við sig öfl- uga samstarfsaðila. Má þar nefna að gerður var fimm ára samningur við Islandsbanka sem nú er einn af aðal- styrktaraðilum Vals og mun merki bank- ans héðan í frá vera á keppnisbúningum félagsins í öllum flokkum. Einnig var gerður samningur við Vífilfell sem jafn- framt verður einn af aðal styrktaraðilum okkar a.m.k. til næstu fjögurra ára. Að auki var samningur Vals og Vodafone endurnýjaður til fimm ára. Jafnframt voru gerðir skammtímasamningar við Avant og Byko. Stuðningur Valsmanna h/f var sem fyrr ómetanlegur. Allt frá því að ný mannvirki voru vígð á Hlíðarenda 2007 hefur Valur og Múlakaffi átt farsælt samstarf á vettvangi veitingareksturs og nú hefur samstarfssamningurinn verið endurnýjaður til þriggja ára. Góð nýting salarkynna er mikilvæg og traust tekju- lind fyrir félagið. Jafnframt voru endur- nýjaðir samningar við Dansskóla Jóns Péturs og Köru, Dansstúdíó Jóa og Háskólann í Reykjavík. Gamla íþróttahiísið öðlast nýtt líí Síðasta sumar gekk „gamla íþróttahúsið“ í endurnýjun lífdaga þegar það var end- urnýjað að miklu leyti innanhúss. Árið 2007 var húsið klætt og einangrað upp á nýtt að utan ásamt því að þak var lagfært. Húsið var komið í nokkra niðurníðslu og félaginu til lítils sóma. Þvf var ekki um annað að ræða en að fara í þær endurbæt- ur sem nauðsynlegar voru enda húsið samofið sögu Vals. í sumar var loftið klætt og einangrað, veggir klæddir, sett var ný lýsing ásamt nýrri loftræstingu og Berglind Iris Hansdóttir fagnar heitt og innilega ásamt félögum sínum íslands- meistaratitli í handknattleik 2010 eftir 27 ára bið. Liðið tapaði hins vegar úrsl bikarkeppninnar á móti Fram. gólf var slípað, endurmerkt og lakkað. Einnig voru settar upp nýjar körfur ásamt því að búningsklefar voru endurgerðir nánast frá grunni. Framkvæmdir við end- urbygginguna tókust mjög vel og er hús- ið nú allt hið glæsilegasta. Nú er því sýnd sú virðing sem því ber enda hefur húsið alið af sér marga af bestu iþróttamönnum Vals. Til verksins voru fengnir ýmsir verktakar sem unnu verk sitt af kostgæfni en verkefnisstjómún var í höndum Brynj- ars Harðarsonar en hönnun og ráðgjöf var í höndum Kristjáns Ásgeirssonar hjá Alark. Ég vil þakka öllum verktökum, sjálfboðaliðum og starfsmönnum sem að þessu verki komu fyrir þeirra framlag, niðurstaðan er að gamalt og sögufrægt mannvirki sem tilheyrir sögu Vals er á ný orðið okkur til mikils sóma. Valsblaðið 2010 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.