Valsblaðið - 01.05.2010, Page 12
Selma Dís Scheving dóttir Soffíu Amundadóttur,
lukkudýr í.flokks kvenna, á vara-
mannabekknum með stelpunum úr 3.flokki.
Vodafone völlurinn.
íslands- og bikarmeistarar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu, annað
árið í röð og jafnframt íslandsmeistarar 5 ár í röð. Einstakur afrekshópur.
íslandsmeistarar meistaraflokks kvenna í handknattleik
2010 fagnað á viðeigandi hátt eftir 27 ára bið. Konni,
kóngurinn í stuðningsmannahópnum fagnar auðvitað
með stelpunum.
4.ffokkur karla í Val og ÍR ganga inn á
Vodafonevöllinn í einum af skemmtilegustu
leikjum sumarsins. Tóm gleði.
því að vinna tvöfalt annað árið í röð. Ein-
sök frammistaða hjá frábærum afreks-
konum. Meistaraflokkur kvenna í hand-
knattleik endaði síðan frábært keppnis-
tímabil með íslandsmeistaratitli í vor
eftir 27 ára bið.
Markvisst hefur verið unnið að eflingu
afreksflokka félagsins. Búið er að gefa út
afreksstefnu Vals en hún á m.a. að sam-
ræma þjálfun og áherslur meistaraflokks,
2. og 3. flokks undir stjórn þjálfara meist-
araflokka hverju sinni. Jafnframt hefur
verið ráðinn í fullt starf styrktar- og þrek-
þjálfari fyrir allar deildir.
íþpóttamaður Vals 2009 og
ípróttamaður ársins
að þeirri útnefningu komin. Hún
hefur bæði staðið sig vel á keppn-
isvellinum en ekki síst er hún góð
fyrirmynd fyrir ungt íþróttafólk
utan vallar sem innan. í byrjun árs
var Valsmaðurinn Ólafur Stefáns-
son kjörinn íþróttamaður ársins í
fjórða sinn en átta sinnum hefur
Valsmaður hlotið þessa æðstu
viðurkenningu sem veitt er
íþróttamanni á íslandi.
Valsdagurinn endurvakinn
f september var Valsdagurinn endur-
vakinn en á árum áður var hann
árlegur viðburður í starfi félagsitis.
Héðan í frá er stefnt að því að dag-
urinn verði hluti af föstum viðburð-
um innan Vals. Þessi dagur hafði á
sínum tíma og hefur enn mikla þýð-
ingu fyrir félagið. Markmið Vals-
dagsins er að kynna krökkum það
fjölbreytta starf sem Valur hefur upp
á að bjóða í íþróttaiðkun og félags-
starfi. Það er ekki síður mikilvægt
að fá foreldra sem oftast að Hlíðar-
enda til að fá tækifæri til að kynna þeim
hvað hér er í boði allt árið um kring.
Jafnframt er hægt að kynna aðstöðuna,
þjálfara og annað starfsfólk. Ábyrgð
þeirra sem taka að sér það uppeldishlut-
verk sem felst í íþróttaiðkun er mikil og
við viljum leggja okkur fram um að gera
það sem best úr garði. Ég vil þakka þeim
stuðningsaðilum félagsins, sjálfboðalið-
um og starfsfólki sem lagði félaginu lið
við að endurvekja Valsdaginn kærlega
fyrir þeirra framlag.
Félagsstarf í blóma
Á gamlársdag var Dóra María Lárusdótt-
ir kjörin íþróttamaður Vals og er hún vel
Eins og að framan greinir er félagsstarfið
í Val með miklum blóma. Haldin voru
árleg golf, bridds- og skákmót sem tók-
ust með miklum ágætum. Valskórinn sem
er eitt af sérkennum Vals hélt úti þrótt-
miklu starfi á árinu. Fjölmennt og vel
lukkað herrakvöld fór fram á haustmán-
uðum og fulltrúaráðið stafar nú af mikl-
um þrótti. Sérstakt átak var gert í að efla
getraunastarfsemi innan Vals sem er
nauðsynlegt bæði ef horft er til fjarhags-
legs ávinnings en ekki síður er gott að
nota tækifærið sem gefst til að treysta
vinaböndin. Þetta átak hefur tekist með
miklum sóma og nú sækja tugir manna
Hlíðarenda heim á hverjum laugardegi til
að taka þátt í leiknum og ræða við mann
og annan. Að endingu vil ég vekja athygli
á mikilvægi þess að Valur tengist enn
betur þeim hverfum sem að félaginu
standa og því er gleðilegt að fá að vinna
með nýju hverfablaði sem hóf göngu sína
nú í haust. Hverfablaðið er góð viðbót
við aðra möguleika sem Valur hefur til að
kynna starfið og aðstöðuna hér að Hlíð-
arenda.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki
Knattspyrnufélagsins Vals undir stjórn
framkvæmdastjóra fyrir vel unnin störf
og gott samstarf á árinu. Sérstakar þakkir
fá allir þeir sjálfboðaliðar sem lagt hafa
félaginu til ómælda aðstoð á árinu en án
allra þeirra fjölmörgu fórnfúsu handa
væri Valur fátækara félag. Ég vil fyrir
hönd stjórnar Vals óska öllum Valsmönn-
um og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs með von um að
við sameinumst öll í að gera afmælisárið
sem glæsilegast og best úr garði. Góðir
Valsmenn, treystum böndin og göngum
vongóð inn í nýtt ár - afmælisár!
Valskveðja,
Hörður Gunnarsson formaður
Valsblaðið 2010