Valsblaðið - 01.05.2010, Qupperneq 16
Valsfjölskyldan
eftir Stefán Karlsson
Félagið er ekkert annað en
folkið sem að því stendur
Sveinn Stefánsson er flestum Völsurum að góðu kunnur, enda hefur hann
verið með annan fótinn ó Hlíðarenda undanfarna óratugi. Sveinn er formaður
handknaftleiksdeildar og hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrlr félaglð tll
fjölda ára, m.a. sem framkvæmdastjóri á upphafsárum þessarar aldar
Sveinn Stefánsson er búsettur í Grafar-
vogi ásamt konu sinni Dagnýju Arnþórs-
dóttur og börnum þeirra Sveini Aroni og
Söru Sif. Segja má að allir fjölskyldu-
meðlimir séu áberandi í félagsstarfinu og
það eru fáir viðburðirnir á Hlíðarenda
sem meðlimir fjölskyldunnar láta sig
vanta á. Sonurinn, Sveinn Aron, hefur
þegar stigið sín fyrstu skref í meistara-
flokki í handbolta þrátt fyrir að vera
aðeins 17 ára gamall, en hann hefur verið
fastamaður í yngri landsliðum Islands
undanfarin ár. Kvenmennirnir í fjölskyld-
unni eru iðulega mættar á heimaleiki í
Hörður Gunnarsson og Sveinn meö
Íslandsbikar kvenna 2010.
handboltanum og aðstoða við þau fjöl-
mörgu störf sem inna þarf af hendi. Vals-
blaðið heimsótti fjölskylduna í Grafar-
voginn og það lá beinast við að spyrja
hvort það væri ekki mikilvægt að öll fjöl-
skyldan sameinaðist í jafn tímafreku
áhugamáli?
„ Jú biddu fyrir þér, þetta starf/áhuga-
mál hefur litað allt fjölskyldulífið á okkar
heimili síðastliðin 10 ár á jákvœðan hátt.
Pað er ekki spurning að Valur sameinar
okkur í áhugamáli. Það gerir allt heimil-
islífið skemmtilegra og auðveldara að
allir skuli hafa sama áhugamál og vitan-
lega litast umrœðuefnin á heimilinu af
því. Það gefur auga leið efað við hefðum
öll mismunandi áhugamál þá myndi sam-
verustundunum fœkka. Þess í stað njótum
við margra samverustunda f tengslum við
þetta sameiginlega áhugamál."
Sveinn er uppalinn í Breiðholtinu frá 6
ára aldri, gekk í Fellaskóla öll grunn-
skólaárin þaðan sem leiðin lá í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti ásamt æsku-
félögunum. Þar lærði Sveinn trésmíði og
vann við það í nokkur ár. Arið 1998 hóf
hann nám í Tækniháskólanum og útskrif-
aðist þaðan sem viðskiptafræðingur B.
Sc. af vörustjórnunarsviði í janúar 2002.
Sveinn, sem er fertugur að aldri, hefur
verið Valsari frá því í grunnskóla:
„Ástœðan fyrir því að ég gekk í Val á
sínum tíma var sú að félagi minn Einar
Páll Tómasson bjó við hliðina á mér í
Kötlufellinu, hann var í Austurbœjar-
skóla og þar kynntist hann strákum sem
voru í Val. Hann fékk mig með sér á fót-
boltaœfingar og þá var ekki aftur snúið.
Því miður var ferillinn ekki langur í bolt-
anum en ég man að ég skoraði grimmt
og þótti gríðarlegt efni þó ég segi sjálfur
frá. Svo komu nokkur ár sem ég lét nœgja
að mœta á leiki. Arið 1992 var ég að
vinna með miklwn Valsara og síðar vini
mínum Svani Gestssyni. Hann fékk mig
til að byrja að dœma ífótbolta og þannig
byrjaði ég aftur í Val. Eg fylgdist vel með
ungu fótboltakrökkunum í gegnum dóm-
gœsluna á þessum tíma og kynntist mörg-
um góðum Völsurum."
Sveinn hefur vissulega mikla ástríðu
fyrir íþróttum og félaginu. Sú ástríða hef-
ur smitast í aðra fjölskyldumeðlimi:
„Eg held að það sé óhœtt að segja að
allir fjölskyldumeðlimir séu nokkuð rauð-
litaðir og gleðjast vissulega þegar vel
gengur. Sveinn Aron hefur œft bœði hand-
bolta og fótbolta með Val. Þrátt fyrir að
búa í Grafarvogi frá tveggja ára aldri
hefiir hann alltaf sótt œfingar á Hlíðar-
enda. Við hjónin fögnuðum mikið í mars
á þessu ári en þá fékk Sveinn Aron bíl-
próf og þá lauk rúmlega 10 ára skutl-
tímabili á œfingar. Hann spilaði sinn
fyrsta leik með meistaraflokki á afinœlis-
degi mömmu sinnar í fyrra þann 22.
október, þá 16 ára gamall.
Sara Sif œfði áhaldafimleika með fim-
leikafélaginu Gerplu í Kópavogi frá 4
ára aldri til 16 ára aldurs og varð
íslandsmeistari í 3. þrepi og 1. þrepi. I
fimleikum kynnist maður œfingaálagi, en
Sara Sifœfði í þrjá klukkutíma á dag sex
daga vikunnar frá 12 ára aldri.
Við hjónin höfum fylgt börnunum í
margar keppnisferðirnar í gegnum tíðina
bœði innan lands og utan. Nú síðast í
sumar fórum við fjölskyldan til Svart-
fjallalands þar sem Sveinn Aron var að
keppa á EM með U18 ára landsliðinu í
handbolta."
Sveinn gegndi erilsömu starfi fram-
kvæmdastjóra hjá félaginu á árunum
2001-2005, þar var í nógu að snúast og
16
Valsblaðið 2010