Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 18
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2009 með framkvœmda■
stjóra. Frá vinstri. Stefán Karlsson framkvœmdastjóri Vals,
Sveinn Stefánsson formaður handknattleiksdeildar, Hörður
GunnarssÓn fonnaður, Eggert Þór Kristófersson varaformaður
og Lárus Blöndal formaður körfuknattleiksdeildar.
an hátt nauðsynlegar en spurning hvort
forsendur þess hafi breyst eftir banka-
hrun. Það hefiir tekið tíma að stilla
strengi milli starfsmanna og sjálfboða-
liða í nýja skipulagnui en mér finnst það
vera að slípast til. Félag eins og Valur
mun alitaf þurfa að reiða sig á mikið og
öflugt sjálfboðaliðastarf og það er nauð-
synlegt að hlúa að því starfi sem frekast
er unnt.
Einnig finnst mér mikiivœgt að það sé
stöðugleiki í starfsmannamáíum, en því
miður hefur skort upp á hann hvað varð-
ar stöðu framkvæmdastjóra. Á einum
áratug höfum við haft átta framkvœmda-
stjóra. Þarna verður að nást meiri stöð-
ugleiki, enda tekur það tíma að komast
inn í slíkt starf öðlast reynslu og þekk-
ingu auk þess að skapa tengsl við féiags-
menn sem eru svo nauðsynleg í starf-
inu.“
Eftir nokkur mögur ár hafa stórir titlar
skilað sér í handboltanum á hverju ári frá
2007 og vill Sveinn þakka það samstilltu
átaki allra innan félagsins.
„Það hefur verið unnið tnjög gott starf
í langan tíma í handknattleiksdeildinni
en því miður létu stóru titlarnir bíða eftir
sér. Kvennaliðið varð bikarmeistari árið
2000 og nœsti stóri titill kom ekki fyrr en
árið 2007 þegar karlaliðið varð Islands-
meistari. Það hefur átt sér stað mikið
uppbyggingarstarf alla þessa öld í hand-
knattleiksdeildinni, ég kem fyrst inn í
fjáröflunarráð deildarinnar 2006 og tók
við sem formaður 2008. Þá höfðu góðir
menn eins og Kalli Jóns, Haraldur Daði,
Jói Þórarins og Stefán Karlsson (ásamt
Oskari Bjarna og Heimi) leitt mikið upp-
byggingastarf sem skilaði svo þessum
bikurum, þ.e. lslandsmeistarar 2007, bik-
armeistarar 2008 og 2009 og svo lang-
þráðum íslandsmeistaratitli 2010 í meist-
araflokki kvenna. Það er ekki spurning
að samstillt átak leikmanna, þjálfara,
sjálfboðaliða og starfsmanna hefur skil-
að góðu gengi undan-
farin ár. “
Eins og Sveinn kem-
ur inn á vann kvenna-
lið Vals langþráðan
íslandsmeistaratitil
síðastliðið vor þegar
liðið sigraði sterkt lið
Fram í æsispennandi
úrslitakeppni.
„íslandsmeistaratit-
illinn hjá stelpunum í
, vor var sérstaklega
sœtur fyrir margra
hluta sakir. Félagið hafði ekki unnið
þennan titil síðan árið 1983 auk þess sem
þetta var fyrsti íslandsmeistaratitillinn
hjá mörgum frábœrum leikmönnum
kvennaliðsins sem verið hafa í toppbar-
áttu undanfarin ár. Ljóst var að Berglind
íris Hansdóttir myndi yfirgefa liðið eftir
tímabilið og frábœrt fyrir þennan mikla
íþróttamann að ná titlinum með sínu
uppeldisfélagi á þeim tímamótum. Stelp-
urnar voru algjörlega frábœrar og sýndu
mikinn karakter og liðsheild. Teymið í
kringum meistaraflokk kvenna er mjög
öfltigt og eiga þeir Stefán Arnarson þjálf-
ari, Jóhannes Lange aðstoðarþjálfari,
Valgeir Viðarsson sjúkraþjálfari og Viðar
Halldórsson mikið hrós skilið."
Þegar þetta er skrifað situr karlaliðið í
6. sæti deildarinnar eftir afar erfiða byrj-
un á mótinu, þá verstu í sögu félagsins.
Sveinn viðurkennir að erfitt gengi hafi
töluverð áhrif á starfið í kringum hand-
knattleiksdeildina.
„Það er engin launung að það hriktir í
stoðum þegar sigursœlasti flokkur félags-
ins hikstar líkt og gerst hefur í haust. Við
aðstœður sem þœr er mikilvœgt að við
þjöppum okkur saman og styðjum liðið.
Auðvitað sýnist sitt hverjum í þessu og
oft telja þeir sig vita mest sem sjá minnst
en við sem erum kjörnir til að stjórna
deildum hverju sinni verðum að gera það
sem við teljum best fyrir félagið hverju
sinni. Við skulum spyrja að leikslokum en
ég heffidla trú á að bœði lið okkar muni
standa sig vel og við munum skila titli /
titlum í vor, á sjálfu 100 ára afinœlisári
félagsins.
Sveinn segir afar mikilvægt að skapa
gott jafnvægi í barna- og unglingastarfi
annars vegar og afreksstarfi hins vegar.
„Það er mikilvœgt að hlúa að að
barna- og unglingastarfinu nú sem
endranœr, þó er líka Ijóst að fyrirmyndir
í meistaraflokki skipa mikilvœgan sess
hjá yngri iðkendum. Valur hefur lagt mik-
Valsfjölskyldan
ið upp úr góðri þjálfun yngri flokka sem
skilar sér alltaf til lengri tíma. Nú á ég
strák sem hefur skilað sér upp í gegnum
barna- og unglingastarfið hjá Val og er
nú að banka á dyrnar hjá meistaraflokki
í handbolta. Hann hefitr bœði haft góða
þjálfara og góðar fyrirmyndir í meistara-
flokki.
Nú hefég hugsað mér að sti'ga til hlið-
ar semformaður í vor og einbeita mér að
því að styðja drenginn í íþróttaiðkun
sinni af fullum krafti. Eg hef þó fullan
hug á að vera áfram í starfinu og tengd-
ur þessu frábœra félagi. Það vœri t.d.
gaman að koma að foreldraráði hjá þeim
efnilegu drengjum sem eru á aldri við
drenginn. Þar eru margir góðir Valsmenn
með syni sína, svo sem Jón Halldórsson,
Guðmundur Hrafnkelsson og Júlíus Jón-
asson. Mér finnst a.m.k. líklegt að ég
verði alltaf með annan fótinn í einhvers
konar félagsstarfi og þá helst tengdu
Val."
Sveinn segir mikilvægt að hlúa að
félagslega þættinum hjá öllum sem koma
að íþróttastarfi. Hann hafi t.a.m. eignast
mikinn fjölda vina og kunningja í starfi
sínu fyrir félagið og það sé einmitt það
sem standi upp úr þegar hann horfir til
baka. Hann segir Val einstakt félag með
ótrúlega sigurhefð:
„Það er í mínum huga mikill heiður að
fá að tilheyra félagi eins og Val og mikil
ábyrgð á okkur sem nú berum kyndilinn.
Munum það að gömlu snillingarnir eins
og sr. Friðrik, Úlfar Þórðar, Siggi Óla,
Jóhannes Bergsteins, Þórðttr Þorkels..og
þeirra samtíðarmenn spttrðu ekki „hvað
getur Vahtr gert fyrir mig heldur hvað
get ég gert fyrir Val“. Fyrst ber að horfa
til upphafsins og þess mikla afreks sem
stofnandi félagsins séra Friðrik Friðriks-
son stóð fyrir, allt frá hans ti'ma og til
dagsins í dag er félagið ekkert annað en
fólkið sem að því stendur. Með samstilltu
átaki í nœr 100 ár hefitr félagið náð þeim
árangri að verða sigursœlasta íþróttafé-
lag landsins . Aberandi er að ungir jafnt
sem eldri iðkendur þekkja sögu félagsins
og stofnanda þess og halda heiðri séra
Friðriks á lofti. Eg held að það halli ekki
á önmtr félög þegar sagt er að andinn í
Val sé einstakur.
Félagið okkar stendur vel og á bjarta
framtíð fyrir sér. Það er Itins vegar mikil-
vœgt að hlúa að upprunanum og gleyma
ekki sögunni. Nú fer í hönd 100 ára
afmœlisár félagsins og þá gefst kjörið
tœkifœri til að rifja enn frekar upp þau
gildi semfélagið er byggt á.“
18
Valsblaðíð 2010