Valsblaðið - 01.05.2010, Page 22
íslands- og bikarmeistarar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu 2010. Efst fi'á vinstri: Stefán Karlsson, Þórðitr Jensson, Þor-
gerður Elva Magnúsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Telma Ólafsdóttir, Guðlaug Rut Þórsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir, Dagný
Brynjarsdóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Embla Sigríður Grétarsdóttir, Freyr Alexandersson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Börkur Edvardsson. Neðri röðfrá vinstri: Andrea Ýr Gústavsdóttir, Björk Gunnarsdóttir, Helga Sjöfn
Jóhannsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, María Björg Agústsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Þórdís Marfa Aikman, Rakel Logadóttir,
Katrín Gylfadóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Heiða Dröfn Antonsdóttir.
r,
r.
Skýrsla knattspyrnudeildar 2010
Aðalfundur Vals kaus þann
29. apríl eftirfarandi i stjórn
knattspyrnudeildar:
E. Börk Edvardsson, formaður, Jón Grét-
ar Jónsson, Braga G. Bragason, Jón
Höskuldsson, Kjartan Orra Sigurðsson,
Stefán Svein Gunnarsson og Friðjón R.
Friðjónsson. Stjórnin skipti með sér verk-
um þannig að Jón Grétar tók að sér vara-
formennsku, Bragi meistaraflokksráð
karla, Jón tók að sér heimaleikjaráð,
Kjartan Orri meistaraflokksráð kvenna,
Stefán markaðsmál og Friðjón kynning-
armál. Starf stjórnar var með nokkuð
hefðbundnum hætti frameftir sumri.
Fálkarnir tóku að sér að grilla pulsur og
hamborgara á leikjum og var því mjög
vel tekið. Bryddað var upp á tveim
nýungum. Annars vegar þá sendi Valur, í
samstarfi við BYKO, miða á tvo heima-
leiki á móti Haukum karla og kvenna
heim til allra barna í hverfinu. miðinn
gilti að sjálfsögðu fyrir annað foreldrið
þar sem börn undir 16 ára aldri borga
ekki aðgangseyri. Það var samdóma álit
allra hlutaðeigandi að átakið tókst vel og
mörg ný andlit sáust á vellinum. Síðari
nýbreytnin var sú að við bikarúrslitaleik-
inn á móti Stjörnunni hafði stjórn knatt-
spyrnudeildar Vals frumkvæði að því að
félögin tvö tóku höndum saman og héldu
fjölskylduhátíð í Laugardal.
27. ágúst urðu svo þau tíðindi að fjórir
stjórnarmenn úr stjórn knattspyrnudeild-
ar létu af störfum, þeir Börkur Edvards-
son, formaður, Jón Grétar Jónsson, Bragi
G. Bragason og Jón Höskuldsson. Að til-
lögu fráfarandi formanns samþykkti aðal-
stjórn Vals að Friðjón R. Friðjónsson taki
við formennsku í stjórn knattspyrnudeild-
arinnar.
Stuttu síðar færði formaður Vals, Hörð-
ur Gunnarsson, fjórmenningunum sér-
stakar þakkir fyrir störf þeirra á hátíðar-
samkomu í tilefni af 100. titli félagsins.
Við það tilefni var á það bent að það
tímabil sem þeir hafa leitt störf knatt-
spyrnudeildar hefur verið með þeim sig-
ursælustu í sögu félagsins. Sex fslands-
meistara- og fjórir bikarmeistaratitlar í
meistaraflokki kvenna og bikarmeistara-
og íslandsmeistaratitill í meistaraflokki
karla segja sína sögu.
Friðjón, Stefán og Kjartan Orri fengu
svo til liðs við sig þá Grím Atlason,
Jóhann Gunnarsson, Þorstein Guðbjörns-
son og Árna Jónsson. Stefán tók að sér
varaformensku en Jóhann og Árni sinna
meistaraflokksráði karla. Þorsteinn heima-
leikjum og Grímur og Stefán markaðs- og
kynningarmálum. Hin nýja stjóm hefur
haft veg og vanda að undirbúningi keppn-
istímabils afmælisársins og eru mörg jám
í þeim eldi. Störf stjómarinnar einkennast
af bjartsýni, góðum anda og tilhlökkun til
næsta árs.
Meistaraflokkur kvenna
Frammistaða meistaraflokks kvenna var í
ár frábær eins og fyrri ár. Liðið vann alla
titla sem í boði voru. Við sumarlok voru
eftirtaldir titlar komnir í hús: Reykjavík-
urmeistari, Lengjubikarinn, Meistarar
Meistaranna, VISA-bikarinn og íslands-
meistaratitilinn. Fjórar Valskonur voru á
meðal fimm markahæstu leikmanna sum-
22