Valsblaðið - 01.05.2010, Page 24
Starfið er margt
Umgjörð leikja var frábær eins og und-
anfarin ár. Ekkert lið í efstu deild státar
af jafn frábærri aðstöðu og Valur gerir, en
þessari aðstöðu þarf að fylgja vösk sveit
fólks sem stýrir umgjörð heimaleikja.
Óhætt er að segja að heimaleikjaráð und-
ir styrkri stjóm Jóns Höskuldssonar hafi
staðið sig frábærlega og er það mikill
fengur fyrir félagið að geta státað af slík-
um hópi.
Árangur á mótum meistaraflokki
karla
Árið 2010 hófst á Reykjavíkurmóti þar
sem sigur gegn ÍR, jafntefli við Þrótt og
KR og tap fyrir Víkingi skiluðu Val ekki
upp úr riðlakeppninni. Góðir sigrar á
Vrkingi, Fjölni, Selfoss og KA skiluðu
Valsmönnum áfram í Lengjubikarnum. í
undanúrslitum spilaði Valur við KR í
Egilshöll og tapaðist leikurinn 0-3. KR
vann síðan Breiðablik í úrslitum og unnu
því Lengjubikarinn. Árið verður seint
fært í sögubækurnar fyrir gott gengi
meistaraflokks Vals karla. Einstaka leikir
standa þó upp úr fyrir skemmtilega
stemningu og góð úrslit og má þar sér-
staklega nefna leik okkar við erkifjend-
urna í KRí Frostaskjólinu. Leikurinn
vannst 1 - 2, Baldur Ingimar kom okkur
yfir á 10 mín. leiksins og jafnaði KR um
miðjan fyrri hálfleik. Einn af betri leik-
mönnum Vals á árinu Arnar Sveinn gerði
sér lítið fyrir og skoraði stórglæsilegt
mark í seinni hálfleik þegar hann komst
einn inn fyrir vörn KR og skilaði boltan-
um í mark af miklu öryggi. Stemningin
var einstök þetta kvöld og veðrið fallegt.
Stuðningsmenn Vals létu vel í sér heyra
og sungu „áfram Valur“ í Frostaskjólinu
og um allan vesturbæinn þetta kvöld.
Það virtist vera stígandi í liðinu og allt
stefndi í gott sumar hjá Valsmönnum.
Fyrstu þrír leikir íslandsmótsins fóru
fram á okkar heimavelli, fyrst var það
FH sem kom í heimsókn og virtist ieikur-
inn ætla að vinnast. Staðan var 2-1 á 82.
mín þegar FH ingar fengu heldur ódýra
vítaspyrnu sem þeir skoruðu úr. Vals-
menn spiluðu vel í leiknum og var stemn-
ingin góð á Hlíðarenda. Mörk Vals í
Meistaraflokkur
karla 2010
Eftir brokkgengt sumar
2009 var fenginn ungur
og efnilegur þjálfari
Gunnlaugur Jónsson til liðsins og stefnan
tekin á uppbyggingu nýs liðs. Gunnlaug-
ur kom frá Selfossi sem hann hafði leitt
upp úr I. deildinni þá um sumarið. Hon-
um til halds og trausts var fenginn James
Bett sem Valsmönnum er góðu kunnur.
Þeim til aðstoðar voru svo Kristján Finn-
bogason sem sá um markmannsþjálfun
og Friðrik Ellert Jónsson sem var sjúkra-
þjálfari og Halldór Eyþórsson og Sævar
Gunnleifsson liðsstjórar.
Miklar mannabreytingar urðu einnig á
liði meistaraflokks, og fóru margir
reynslumiklir leikmenn frá félaginu en
aðrir komu í staðinn. Frá Val fóru um
haustið þeir Arnar Gunnlaugsson, Baldur
Bett, Bjarki Gunnlaugsson, Guðmundur
Viðar Mete, Helgi Sigurðsson, Marel
Baldvinsson og Pétur Georg Markan frá
Val og síðar um veturinn gekk Bjarni
Olafur Eiríksson til liðs við Stabæk í
Noregi. Nokkrir leikmenn fóru svo að
láni til annarra félaga allt sumarið eða
hluta sumars. Haraldur Björnsson lék
með Þrótti allt sumarið og þeir Guð-
mundur Steinn Hafsteinsson og Einar
Marteinsson léku með HK fyrri hluta
sumars. Steinþór Gíslason lagði skóna á
hilluna vegna meiðsla og vonum við
Valsmenn auðvitað að hann nái sér af
þeim og snúi aftur að Hlíðarenda.
Til liðs við Val gengu Stefán Jóhann
Eggertsson og Rúnar Már Sigurjónsson
frá HK, Haukur Páll Sigurðsson frá Þrótti
og Jón Vilhelm Ákason frá ÍA. Þá fékk
Valur til sín sterka leikmenn að utan,
tveir danskir leikmenn gengu til liðs við
Val, Danni König kom frá Brpnshpj og
Martin Pedersen kom að láni frá Velje.
Þá kom hinn skoski varnarmaður Gregg
Ross frá Dunfermline.
Á miðju leiktímabili fóru nokkrir leik-
menn frá Val, Viktor Unnar Illugason
gekk til liðs við Selfoss, Hafþór Ægir
Vilhjálmsson til Grindavíkur og Danni
König fór svo á miðju tímabili aftur til
Brpnshdj sem varð til þess að með mjög
stuttum fyrirvara fékk Valur til sín hinn
írska Diarmuid 0‘Carroll sem var með
lausan samning.
leiknum skoruðu Danni König og
Arnar Sveinn. í kjölfarið fylgdi jafnt-
efli við ÍBV sem átti eftir að koma á
óvart á tímabilinu og tap gegn Breiða-
blik. Fyrsti útileikur sumarsins var
suður með sjó þegar við heimsóttum
Grindavík. Sigur vannst í leiknum 1 -
2 með mörkum frá Danni König og
Jóni Vilhelm. Mánudaginn 31. maí
komu Fylkismenn í heimsókn á Hlíð-
arenda og var gestrisnin ekki mikil hjá
Valsmönnum því leikurinn endaði 5-2
fyrir Val og því liðið á góðu skriði. Sigr-
ar á KR og Selfossi gáfu stuðningsmönn-
um draum um það að sumarið ætti eftir
að enda vel og við gætum jafnvel séð
fram á Evrópusæti ef svo héldi fram sem
horfði. En við tók tímabil frá 23. júní -
16. ágúst þar sem ekki vannst leikur og á
því tímabili féll Valur jafnframt úr Visa-
bikarnum þegar iiðið tapaði fyrir Fram í
8. liða úrslitum. Valur hafði áður unnið
Aftureldingu og Víking í Visa bikarnum.
Mánudaginn 16. ágúst sótti Valur - Fylki
heim og vannst vinnusigur í þeim leik
þar sem góður varnaleikur og mark frá
okkar sterka miðjumanni Hauki Páli
tryggði okkur langþráðan sigur. Sigrar á
Stjörnunni og Selfoss breyttu því ekki að
gengið var ekki eins og vonast var eftir.
Síðustu 3 leikir tímabilsins töpuðust og
endaði Valur í 7. sæti Pepsi deildarinnar
með 28 stig 16 stigum á eftir Breiðablik
sem varð íslandsmeistari.
Nýir þjálfarar
í haust ákvað stjórn knattspyrnudeildar
að nýta sér endurskoðunarákvæði í samn-
ingi Gunnlaugs Jónssonar og hefur hann
nú tekið við KA. Við Valsmenn viljum
þakka honum fyrir góð störf, og óskum
honum að sjálfsögðu alls hins besta í sínu
nýja hlutverki fyrir norðan.
Við starfi hans tók Kristján Guð-
mundsson, og Freyr Alexandersson fyrr-
um þjálfari meistaraflokks kvenna var
ráðinn honum til halds og trausts sem
aðstoðarþjálfari. Ljós var einnig að marg-
ir leikmenn sem myndað hafa kjarna liðs-
ins undanfarin ár voru að klára samninga
sína og var ákveðið að yngja talsvert upp
í hópnum. Því hafa talsverðar manna-
breytingar orðið á meistaraflokki karla
nú í haust, en jafnframt er það markmið
stjórnar og þjálfara að slíkar breytingar
verði með talsvert minni sniði næstu
árin.
Nú tekur við 100 ára afmælisár knatt-
spyrnufélagsins Vals og öllum aðstand-
endum sem og leikmönnum meistara-
24
Valsblaðið 2010