Valsblaðið - 01.05.2010, Qupperneq 25
flokks karla í knattspyrnu það Ijóst að
mikil eftirvænting er hjá Valsmönnum
öllum fyrir komandi sumri. Það er von
okkar, að sá meðbyr sem við ætlum okk-
ur að fá með afmælinu og hækkandi sól,
skili sem flestum Valsmönnum á leiki
liðsins og styrki enn frekar við þá
umgjörð sem félagið á skilið.
2. flokkur kvenna
Rakel Logadóttir leikmaður meistara-
flokks kvenna annaðist áfram þjálfun 2.
flokks kvenna síðasta tímabil og náði frá-
bærum árangri á tímabilinu. Flokkurinn
lék í A-deild íslandsmótsins og var
árangur liðsins mjög góður en stelpurnar
urðu annað árið í röð íslandsmeistarar,
nokkuð örugglega. Þær fóru taplausar í
gegnum mótið, unnu 10 leiki og gerðu 2
jafntefli og markatalan var glæsileg
53-14. Þær unnu Þær töpuðu fyrir KR í
undanúrslitum VISA bikarkeppninnar
eftir vítaspyrnukeppni. Stelpurnar kom-
ust í undanúrslit í Islandsmótinu innan-
húss. í hópnum núna eru margar efnileg-
ar stúlkur sem eiga framtíðina fyrir sér.
Nokkrar stúlkur úr hópnum hafa verið
valdar í U17 landsliðshópinn og einnig í
U19 landsliðshópinn, en athygli vekur að
samtals hafa rúmlega 10 stelpur verið
valdar í úrtakshópa fyrir yngri landslið
íslands og á ekkert annað lið annan eins
fjölda af efnilegum yngri leikmönnum
þannig að framtíðin er svo sannarlega
björt hjá félaginu ef vel er haldið á spil-
unum. Rakel Logadóttir verður áfram
aðalþjálfari liðsins.
2. flokkur karla
Halldór Jón Sigurðsson (Donni) þjálfaði
2. flokk á síðasta tímabili og Matthías
Guðmundsson leysti hann af tímabundið
sl. sumar. í hópnum eru margir efnilegir
strákar og lék liðið í A deild íslandsmóts-
ins og endað að lokum í 4.-6. sæti deild-
arinnar. Liðið stóð sig frábærlega í VISA
bikarkeppninni og komst alla leið í und-
anúrslit þar sem strákarnir gerðu jafntefli
við FH en töpuðu síðan í vítaspyrnu-
keppni. Nokkrir strákar í hópnum voru á
árinu boðaðir í úrtaksæfingar með yngri
landsliðum íslands. í október fþr Kol-
beinn Kárason ásamt Arnari Svein Geirs-
syni til Noregs í prufu hjá Brann. Þeir
sneru báðir til baka en reynslunni ríkari.
Halldór Jón Sigurðsson verður áfram
þjálfari flokksins og miklar vonir eru
bundnar við komandi tímabil þar sem
Islandsmeistarar 2.flokks kvenna íknattspyrnu 2010. Efri röð frá vinstri. Rakel
Logadóttir þjálfari, Telma Ólafssóttir, Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, Helga Birna
Jónsdóttir, Sceunn Sif Heiðarsdóttir, Bjarnheiður Sigurbergsdóttir, Birna Kolbrún
Birgisdóttir, Hekla Dögg Sveinbjarnardóttir, Guðrún Elín Jóhannsdóttir, Kristín Lovísa
Lárusdóttir og Andrea Ýr Gústavsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Alexía Imsland, Þor-
gerður Elva Magnúsdóttir , Guðlaug Rut Þórsdóttir, Þórdís María Aikman. Þórhildur
Svava Einarsdóttir, Katrín Gylfadóttir, Svana Rún Hermannsdóttir, Heiða Dröfn
Antonsdóttir og Eva Rut Eiríksdóttir.
m.a. er lögð áhersla á aukin tengsl
flokksins við meistaraflokk, en nokkrir
leikmenn æfa einnig með meistaraflokki.
Yngpi flokkar
8. flokkur
8. flokkur samanstendur af 3-5 ára
krökkum sem æfðu tvisvar sinnum í
viku. Flokkurinn er blandaður en þó
hefðu mátt vera fleiri stelpur. Það voru í
kringum 18-20 krakkar sem æfðu með 8.
flokki þetta árið. Við tókum þátt í Bónus-
móti Þróttar sem haldið var í Laugardaln-
um í sumar og var þetta fyrsta mótið sem
flestir fóru á. Það var því mikil spenna
og gleði sem ríkti þegar þau fengu að
keppa við önnur lið. Þarna lærðu krakk-
arnir mikið og stóðu sig með stakri prýði.
Hjá 8. flokki er áherslan á að kynnast
boltanum og læra einföldustu reglur
íþróttarinnar. Þarna læra þau einnig að
vera í hópi og taka tillit til annarra. Það
er mikið farið í leiki með og án bolta og
auðvitað Iíka spilaður fótbolti. Krakkarn-
ir sýndu miklar framfarir og það var
gaman að þjálfa þau.
Þjálfarar: Rakel Logadóttir og Birkir
Örn Gylfason.
7. flokkur kvenna
Flokkurinn í ár var fjölmennur og góður.
Yfir vetrarmánuðina voru um 30 stelpur
á æfingu þegar mest var og yfir sumarið
mættu um 20-25 stelpur á flestar æfing-
ar. Thelma og Begga Gná voru með
flokkinn fram að sumri en um sumarið
tók Lobba við, með henni var fyrst
Sæunn Sif en Steinunn Sara tók við af
henni og kláraði sumarið ásamt Lobbu.
Flokkurinn fór á 4 mót yfir sumarið,
Vísamót Þróttar þar sem að allir fóru
heim sem sigurvegarar, Símamótið þar
sem B og C lið höfnuðu í 1 -2. sæti,
Pæjumótið, þar sem A liðið hafnaði í 2.
sæti og B liðið í 4. sæti og eftir svona
frammistöðu og líka frammistöðuna á
mótunum á undan gátu sáttir þjálfarar
ekki annað en stokkið út í á. í lok surnars
fór flokkurinn á Fylkismót og var árang-
urinn þar ekki síður góður og A liðið
hampaði sigri þar. Árangurinn var frábær,
stelpumar voru frábærar sem hópur og
vom Val til sóma innan sem utan. Hópur-
inn sýndi miklar framfarir á milli leikja
og móta og var virkilega gaman að fylgj-
ast með þeim. Barátta og leikgleði og
mikil liðsheild einkenndi þennan hóp. Ég
vil að lokum koma á framfæri þökkum til
foreldra stelpnanna, ykkar starf er ekki
síður mikilvægt og að hafa svona foreldra
hóp í kringum sig er bara plús og þið
eruð stelpunum ykkar til mikils sóma.
Þjálfarar: Kristín Lovísa Lárusdóttir og
Steinunn Sara Helgudóttir
7. flokkur karla
Flokkurinn æfði 3 sinnum í viku í vetur.
Á æfingu vom allt að 60 krakkar sem
komu með skólarútunni eða var skutlað.
25