Valsblaðið - 01.05.2010, Page 26
Strákarnir æfðu af miklu kappi
og stóðu sig gífurlega vel í öllu
sem var lagt fyrir þá. Það voru
fjölmörg mót sem að flokkurinn tók þátt
í. 3 mót fyrir áramót ásamt því að spila
nokkra æfingarleiki og strákarnir stóðu
sig vel. Eftir áramót var nóg um að vera
og mótin mörg ásamt æfingarleikjum.
Farið var á mót í Keflavík þar sem flokk-
urinn var með fjögur lið og árangurinn
þar frábær! Um sumarið var svo farið á
Norðurálsmótið á Akranesi þar sem
flokkurinn sendi sex lið til þátttöku. Mót-
ið var gífurlega skemmtilegt og strákarn-
ir höfðu mjög gaman af. Fjögur af sex
liðum flokksins fóru í A-úrslit og stóðu
sig frábærlega og voru að margra mati
prúðasta liðið á mótinu. I lok sumars var
svo spilaður stærsti leikur ársins á Hlíð-
arenda. Þar mættust strákarnir og foreldr-
ar þeirra. Þetta var svakalegur leikur og
það þarf varla að taka það fram, að strák-
arnir unnu foreldra sannfærandi og sýndu
mjög flotta takta. Við þjálfarar þökkum
fyrir skemmtilegt ár og sérstakar þakkir
fá foreldrar fyrir sína þátttöku í starfinu í
kringum drengina.
Þjálfarar: Igor Bjarni Kostic og Birkir
Örn Gylfason.
6. flokkur kvenna
Tímabilið byrjaði 2009 og þá var flokk-
urinn svolítið fámennur. Aðeins 16 stelp-
ur voru skráðar. Við fórum með 2 lið á
haustmót og Reykjavíkurmót og stóðu
bæði lið sig mjög vel. Eitthvað dróst úr
fjöldanum eftir áramót og í mars/apríl
voru aðeins um 10 stelpur að mæta á
æfingar. Þær sem voru duglegar að mæta
á hverja æfingu bættu sig mjög mikið.
Við tókum þátt í Skallagrímsmótinu og
náðum góðum árangri í báðum liðum og
mátti sjá mikla bætingu í liðinu. Það var
svo um mitt sumar þegar 10 nýjar stelpur
byrjuðu að æfa fótbolta og margar af
þeim höfðu aldrei æft áður og nokkrar
byrjuðu aftur. Þá fjölgaði aldeilis á
æfingum og helgur betur bættist í fjörið.
Við fórum því með rúmlega 20 stelpur á
Símamótið og Pæjumótið á Siglufirði.
Mikil gleði var við völd á Siglufirði og
var mæting foreldra til fyrirmyndar.
Flokkurinn naut mikils stuðnings foreldr-
anna og viljum við þjálfarar þakka þeim
gott samstarf. Það var svo í lok sumars
eða seinustu helgina í ágúst sem við tók-
um þátt í Fossvogmóti HK og þar topp-
aði liðið árangur sumarsins og fóru bæði
A og C lið á kostum. Svo voru nokkrir
snillingar sendir í knattraksþrautir og að
sýna aðrar listir og unnu sér inn 2 ísveisl-
ur. Við enduðum sumarið á foreldrabolta
og pizzu- og ísveislu þar sem leikmenn
sýndu foreldrunum í tvo heimana og
fengu sér svo pizzur og ís í verðlaun.
Flokkurinn stækkaði þegar leið á sum-
arið og allir leikmenn tóku miklum fram-
förum. Við tökum á móti næstu verkefn-
um með bros á vör og stóru Valshjarta sem
slær í takt við þennan frábæra árangur.
Þjálfarar: Kristín Ýr Bjarnadóttir og
Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir.
6. flokkur karla
Keppnistímabili hjá 6. fl. var að mörgu
leyti öðruvísi en undanfarin tímabil. í
upphafi voru um 40 strákar skráðir í
flokkinn en þeim átti eftir að fjölga til
muna og verða stærsti hópur sem stund-
að hefur íþróttina hjá félaginu frá upphafi
- því þeir urðu um 70. Slík fjölgun hefur
í för með sér að æfingaaðstaða þarf að
vera talsvert önnur en hjá flokki sem tel-
ur um 20. Við þessum nýju aðstæðum
þurfti og þarf félagið að bregðast ef
félagið ætlar að sinna þessum hópi sem
skyldi. Þessi mikla fjölgun leiddi til þess
að félagið sendi fjölmennasta hóp sem
það hefur nokkur sinni sent á mót til
þessa. Valur var með 6 lið á Shellmótinu
í Eyjum árið 2010.
Megin markmið flokksins að þessu
sinni voru:
• Að auka grunntækni
• Að auka áhuga á íþróttinni
• Að leggja áherslu á ögun bæði innan
sem utan vallar - því að það að taka
þátt í íþróttum krefst ákveðnar ögunar.
Þessi markmið náðust að einhverju leyti
- en sérstaklega er ánægjulegt að minn-
ast þess að hópurinn vann Prúðmennsku-
verðlaunin á Shellmótinu fyrir góða
frammistöðu utan sem innan vallar og er
það gott til þess að vita. Flokkurinn tók
þátt í nokkrum mótum í vor og sumar og
var árangurinn að vissu marki ásættan-
legur en að öðru leyti ekki.
En gott starf í flokki krefst meira en að
hafa þjálfara, iðkendur, nokkrar bolta,
keilur og vesti og skipulegar æfingar-jú
það krefst þess að foreldrar/forráðamenn
standi fast að baki iðkendum, félaginu og
þjálfaranum., Við þjálfararnir viljum nota
þetta tækifærið til að þakka öllum þeim
foreldrum/forráðamönnum sem komu að
starfi flokksins kærlega fyrir þeirra fram-
lag. Sérstaklega viljum við nefna eitt
nafn í þessu sambandi en það er Elfur
Sif. Við strákana segjum við „ strákar
haldið áfram að æfa“.
Þjálfarar: Agnar Kristinsson, Hallur
Asgeir Kristjánsson, Breki Bjarnason
og Valdimar Arnason
5. flokkur kvenna
5. flokkur kvenna þetta árið samanstóð af
28 frábærum stelpum. Strax frá upphafi
var lögð rík árhersla á að virkja félags-
andann í hópnum og mynda sterka liðs-
heild. Stelpurnar tóku þátt í æfingaleikj-
um ásamt félagslegum verkefnum á
vetramánuðunum sem skilaði sér í góðri
frammistöðu í mótum ársins. Öll lið
flokksins stóðu sig mjög vel og var verð-
launasæti tryggt á öllum mótum ársins.
Öll liðin komust að lokum í úrslitakeppni
íslandsmótsins þar sem A og B-lið lentu í
öðru sæti, C-lið i þriðja sæti og D-liðið
varð íslandsmeistari. Stelpurnar tóku
miklurn framförum ekki einnungis í
knattspyrnu heldur þroskuðust vel og
lærðu það hvernig það er að vera hluti af
hópi og koma vel fram hver við aðra.
Hvert sem stelpurnar komu voru þær Val
til sóma jafnt innan vallar sem utan. Öfl-
ugt foreldrastarf er gríðarlega mikilvægt
ef vel á ganga og viljum þjálfarar koma
fram þökkum til foreldra og foreldraráðs
fyrir framúrskarandi starf í kringum
flokkinn. Kærar þakkir bæði foreldrar og
stelpur fyrir frábært tímabil.
Þjálfarar: Margrét Magnúsdóttir, Krist-
26
Valsblaðið 2010