Valsblaðið - 01.05.2010, Qupperneq 28
Starfið er margt
r ■ ’ i
Dana Cup meistarar 3. flokks kvenna í knattspyrnu 2010. Efri röðfrá vinstri:
Soffía Ámundadóttir þjálfari, Svava Rós Guðmundsdóttir, Elín Metta Jensen,
HUdur Antonsdóttir, Villimey Friðriksdóttir, Hugrún Arna Jónsdóttir, Birta Sif
Kristmannsdóttir, Vigdís Birta Þorsteinsdóttir og Kjartan Orri Sigurðsson
aðstoðarþjálfari. Neðri röð frá vinstri: María Soffía Júlíusdóttir, Kara
Magnúsdóttir, Rúna Oddsdóttir, Berglind Rós Agústsdóttir, Lísbet
Sigurðardóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Erla Steina Sverrisdóttir.
.s
var mjög góður. Sumarið rann í garð og
íslandsmótið hófst og spilaði liðið í B-
riðli íslandsmótsins. Flokkurinn var
færður upp um riðil að beiðni félagsins
og strákarnir voru félaginu og sér til
sóma þetta íslandsmót. En strákarnir
voru í séns á úrslitakeppni allt að síðasta
leik. Liðið tók einnig þátt í Rey Cup með
2 lið. í lok sumars fór liðið norður á
Akureyri og tók þátt í íslandsbankamóti
Þórs. Það mót var skemmtiferð og heppn-
aðist mjög vel en tvö lið voru send til
leiks. Því var skipt í yngra og eldra árs
lið og endaði á úrslitaleik yngra ársins og
eldra ársins þar sem yngri unnu í hörku-
leik 4-3. Við þjálfarar viljum þakka
drengjunum fyrir gott fótboltaár og tím-
ana saman. Einnig fá foreldrar drengj-
anna sérstakar þakkir fyrir stuðninginn
og vinnu í þeirra þágu.
Þjálfarar: Halldór Jón Sigurðsson og
Igor Bjami Kostic.
Besta ástundun: Sindri Scheving
Mestu framfarir: Kári Gunnarsson
Liðsmaður flokksins: Kolbeinn Arnórs-
son
3. flokkur kvenna
Árangurinn á þessu tímabili var frábær.
Flokkurinn samanstendur af 23 leik-
mönnum. Það bættust tveir nýir leikmenn
við á árinu og einn leikmaður lagði skóna
á hilluna. Flokkurinn tók þátt í átta mót-
um og fengu allir leikmenn verkefni við
hæfi. Flokkurinn varð: Haustmótsmeist-
ari 2009, íslandsmeistari í Futsal 2010,
Reykjavíkurmeistari 2010, Eimskipsmót-
meistari 2010, Rey Cup meistari 2010,
Dana Cup meistari 2010, bikarmeistari
2010 og silfurhafar í íslandsmóti 2010.
Félagslega er flokkurinn MJÖG sterk-
ur og var margt gert til að þjappa hópn-
um meira saman og til gamans. Þar má
nefna: sjósund, hópefli, bíó, sund, partý,
videókvöld, spilakvöld, magadans og
margt meira. Flokkurinn hefur séð um
sjoppuna í heimaleikjum Vals í sumar og
gert það svo vel að um er talað. Einnig
voru leikmenn aðstoðarkennarar í íþrótta-
skóla Vals á’ laugardagsmorgnum í allan
vetur. Leikmenn þóttu geisla af kurteisi,
glaðlyndi og dugnaði í þeirri vinnu. Leik-
menn voru í fitness þjálfun einu sinni í
viku þetta tímabil. Kjartan Orri Sigurðs-
son íþróttafræðingur sá um þann hluta
þjálfunarinnar og þökkum við honum
kærlega fyrir allar harðsperrurnar á árinu.
Það eru tveir aðilar sem við viljum þakka
kærlega fyrir alla aðstoðina á þessu
keppnistímabili og viljum við biðja þau
að koma hér upp til að taka við smá
þakklætisvotti: Árni Jónsson æskulýðs-
kóngur og hópeflismeistari og Ragnheið-
ur Víkingsdóttir sjúkraþjálfari og teyp-
ingameistari.
Ég vil þakka leikmönnum og foreldr-
um fyrir frábært keppnistímabil og óska
þeim leikmönnum sem eru að ganga upp
í 2. fl. alls hins besta í framtíðinni.
Þjálfari: Soffía Ámundadóttir.
Besta ástundun: Villimey Friðriksdóttir
Mestu framfarir: Erla Steina Sverris-
dóttir
Liðsmaður flokksins: Elín Metta Jensen
3. flokkur karla
3. flokkur karla var ekki fjölmennur í ár,
en samanstóð af frábærum einstaklingum
sem voru staðráðnir í því að æfa vel og
taka stórstígum framförum. Flokkurinn
tók þátt í fimm mótum og fór í æfinga-
ferð á Selfoss þar sem gist var í eina nótt.
Einnig var margt annað félagslegt gert á
tímabilinu. Tímabilið byrjaði með þát-
töku í Reykjavíkurmótinu og gekk það
mót þokkalega. Síðan tóku flokkurinn
þátt í íslandsmótinu innanhúss eða Futsal
eins og það er kallað f dag. Spilað var í
Þorlákshöfn og mjög góð stemning náð-
ist upp hjá hópnum. Þeir stóðu sig nokk-
uð vel þar þrátt fyrir að hafa einungis æft
einu sinni innanhúss fyrir mótið. I bikar-
keppninni spiluðu strákarnir við sterkt lið
Selfyssinga og biðu í lægri hlut þar í
hörkuleik þrátt fyrir að hafa komist yfir.
íslandsmótið byrjaði mjög vel hjá strák-
unum og voru þeir efstir í riðlinum eftir
þrjá leiki. Fjórir leikir unnust, eitt jafnt-
efli en fimm tapleikir var niðurstaðan að
Valsmenn hl. óska öllum
Valsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári moð þökk
fyrir samstarfið á árinu scm er að líða