Valsblaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 36
og höfðu ekki trú á Valsliðinu eftir mikl-
ar breytingar í leikmannahópnum og ekki
síst með ungan óreyndan þjálfara við
stjórn. „Ég ætlaði að nýta tækifærið til að
sanna mig sem þjálfari og það veitti mér
aukinn kraft hversu fjölmiðlar töluðu
ítrekað um að nú væri komið að því að
önnur lið næðu að gera góða hluti í
kvennaboltanum og rætt var um að 2009
yrði ár Breiðabliks en þær höfðu styrkt
sig verulega fyrir tímabilið. Það voru
ekki miklar væntingar í fjölmiðlum um
að reynslulaus 27 ára þjálfari gæti fetað í
fótspor Elísabet hjá stórveldinu Val með
gjörbreyttan leikmannahóp. Það hafði í
raun enginn trú á mér og þar af leiðandi
ekki á liðinu og ég notaði mér þetta sem
innblástur allt tímabilið. Ég klippti t.d.
alla umfjöllun úr blöðum og geymdi
hana, en þar var allt á sama veg, Breiða-
blik myndi taka titlana, Valur gæti ekki
spilað sókn og þjálfarinn væri ekki starf-
inu vaxinn. Ég notaði þessar úrklippur til
að halda okkur á tánum allt tímabilið,
síðast í bikarúrslitaleiknum á móti
Breiðablik. Þegar stelpurnar gengu inn í
klefann fyrir leik var hann þakinn slag-
orðum um að þetta yrði ár Breiðabliks og
það var nóg til að kveikja í mannskapn-
um. Ég er rosalega ánægður með það
tímabil en vitaskuld þurfti að breyta
ýmsu í leikskipulagi með nýjum leik-
mönnum, og það var einnig ánægjulegt
að sjá ýmsa leikmenn blómstra á tíma-
bilinu, t.d. Kristínu Ýr sem varð marka-
hæst í deildinni en margir voru búnir að
afskrifa hana eftir erfið meiðsli. Hallbera
Guðný eignaðist nýtt líf þetta tímabil og
Rakel Logadóttir einnig með nýjum leik-
aðferðum og einnig stigu ýmsir ungir
leikmenn upp. Þetta tímabil unnum við
alla stóru titla sem voru í boði en okkur
tókst samt að klúðra deildarbikarnum eft-
ir vítaspyrnukeppni við Stjörnuna.
fslandsmótið árið 2009 var reyndar eitt
skemmtilegasta íslandsmót í langan tíma
þar sem mörg lið voru vel mönnuð og
spenna hélst í mótinu allt til loka, t.d.
komu Þór/KA, Stjarnan og Fylkir sterk
til leiks og auðvitað Breiðablik sem við
vissum að yrði aðalkeppinautur okkar um
titilinn. Þegar við t.d. töpuðum fyrir
Breiðablik snemma móts á heimavelli
2-3 þá spáðu flestir því að liðið myndi
ekki höndla spennuna og ekki síst ungi
óreyndi þjálfarinn. Ég vil meina að við
höfum unnið rosalega vel úr þeim leik,
notuðum mótlætið til að styrkja okkur,
fórum ekkert að grenja yfir tapinu, fórum
vel yfir hvað hefði farið úrskeiðis og
nýttum þennan leik til að styrkja okkur,
héldum haus og töpuðum ekki trúnni á ■
okkur,“ segir Freyr ákveðið og einbeittur.
Draumatímabil 2010 hjá stelpunum
„Á síðasta tímabili náðum við enn betri
árangri og unnum alla titlana sem voru í
boði og hópurinn var einstakur. Það hjálp-
aði mikið til á undirbúningstímabilinu að
fara í æfingaferð til útlanda en ferðin
hristi hópinn saman en síðan lentum við í
því áfalli að missa Sif Atladóttur, en eftir
á að hyggja þá þjappaði það hópnum enn
frekar saman. Stelpurnar eru einstaklega
einbeittar í að ná árangri og vilja njóta
þess saman að vera í fótbolta og taka
verkefnið af fullri alvöru. Við leggjum
gríðarlega mikið upp úr því að stelpurnar
gefi af sér til samherja, stuðningsmanna
og klúbbsins í heild og eins koma þær því
skýrt á framfæri að þær eru þakklátar fyr-
ir það sem þær hafa hjá félaginu, þ.e.
aðstöðu, umgjörð og allan stuðning. Um
leið eru stelpurnar kröfuharðar til sín, til
þjálfara og til félagsins og leikmennirnir
vilja fá jákvæða strauma til baka frá
félaginu sem þær hafa svo sannarlega
fengið. Ég legg mikið upp úr einstak-
lingsæfingum og einstaklingsmarkmiðum
og ræði mikið um það sem við viljum
bæta. Stelpurnar eru líka miklir vinir utan
vallar til að eiga góðar stundir saman og
makarnir eru orðnir góðir vinir með sér-
stakan makaklúbb og þær fá góðan stuðn-
ing að heiman en án hans er mjög erfitt
að ná toppárangri. Umgjörðin er heilt yfir
framúrskarandi. Það eina sem olli mér
vonbrigðum var að detta út í 32 liða
úrslitum úr Evrópukeppninni gegn
spænsku meisturunum. Liðið er reyndar
frábært og nær yfirleitt mjög góðum
árangri á heimavelli en þar töpuðum við
3-0 og þar tek ég á mig þau mistök að
hafa leikskipulagið of vamarsinnað en
liðið var ekki tilbúið í þennan þétta varn-
arleik. Það var mjög svekkjandi að detta
út en metnaðurinn í liðinu var klárlega til
staðar að fara áfram en það koma ný tæki-
færi og liðið er reynslunni ríkari," segir
Freyr.
Skil sáttur og pakklátur við
kvenualiðið
„Ég skil mjög sáttur við kvennaliðið, er
fyrst og fremst þakklátur fyrir þennan
tíma, fyrir að hafa kynnst þessum frá-
bæru íþróttamönnum en það eru fáir í
karlafótboltaheiminum sem átta sig á
gæðunum í þessum íþróttamönnum,
hversu metnaðarfullar og skipulagðar
stelpurnar eru og hversu mikið þær
leggja á sig til að ná árangri. Mér finnst
reyndar of margir í karlaboltanum ekki
bera nægilega virðingu fyrir kvennabolt-
anum. Ég fullyrði að ég hefði ekki getað
byrjað feril minn í meistaraflokki betur
en að þjálfa meistaraflokk kvenna í Val
og mun þetta verða mér ómetanleg
reynsla sem fylgir mér, en ég stefni að
því að starfa eins lengi og ég get við
þjálfun. Ég er búinn að þjálfa topp
íþróttamenn sem gera miklar kröfur, taka
þátt í Evrópukeppni nokkrum sinnum,
hef verið með unga og efnilega leikmenn
hjá félagi sem gerir miklar kröfur um
árangur," segir Freyr brosandi.
„Ég tel mjög raunhæft að Valsstelpurn-
ar haldi áfram á sömu braut á næsta ári
með nýjan þjálfara en það er Ijóst að
mörg önnur lið verða sterk, t.d. Stjarnan
og væntanlega kemur ÍBV sterkt inn aft-
ur og Breiðablik verður sterkt eins og
vanalega. Kvennadeildin verður vonandi
jöfn og spennandi, en ég spái því að 6 lið
verði í efri helmingnum og 4 í þeim neðri
og okkar lið verður í fremstu röð þótt
óraunhæft sé að ætla að liðið vinni alla
titla, en ef við vinnum þessa stóru þá
erum við sátt,“ segir Freyr og glottir.
Nýtt og spennandi
uppbyggingarstarf að Hliðarenda
Freyr hefur nú tekið við starfi aðstoðar-
þjálfara meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu hjá Val og ýmsum öðrum verkefn-
um hjá félaginu. „Ég tel að þetta sé rök-
rétt skref hjá mér í þjálfaraferlinum og
var ánægður þegar mér bauðst að starfa
við meistaraflokk karla Núna verð ég
nánast í 100% starfi sem þjálfari hjá Val
og er það draumastaða. Ég sleppi ekki
36
Valsblaðið 2010