Valsblaðið - 01.05.2010, Qupperneq 37
Kjartan Orri Sigurðsson, Freyr og
Guðlaugur Jónsson fylgjast með
einum af skemmtilegustu leikjum
sumarsins íyngri flokkunum.
hendinni strax af kvennaboltanum, verð
tæknilegur ráðgjafi fyrir Gunnar Borg-
þórsson þjálfara til að hann komist inni í
það mynstur sem er hjá félaginu og hefur
hann aðgang að öllum mínum þjálfunar-
gögnum frá því að ég byrjaði og hann
getur nýtt sér það eins og hann vill. Svo
er ég honum innan handar með leikmenn
og er einnig innan handar með þjálfurum
2. og 3. flokks til að móta þá leikmenn
sem eru að koma upp. Síðan er ég með í
stefnumótun karla- og kvennamegin í 2.
og 3. flokki í tengslum við afreksstefnu
félags ásamt meistaraflokksþjálfurunum,
Gunnari og Kristjáni Guðmundssyni. Ég
sé um að koma hugmyndafræði afreks-
stefnunnar til skila og aðstoða þjálfarana
eftir þörfum. Karlamegin er það hlutverk
mitt að koma reglu á ýmislegt í starfinu,
bæði hjá meistaraflokknum og 2. og 3.
flokki og þar mun ég m.a. byggja á því
staifi sem verið hefur hjá Val í kvennafót-
boltanum, t.d. samkennd, vinnusemi og
dugnaður á æfingum og að strákamir gefi
meira af sér til félagsins. Svo verð ég
aðstoðarþjálfari Kristjáns hjá meistara-
flokki karla og sé um stóran þátt af ein-
staklingsþjálfuninni fyrir utan almenna
vinnu með flokkinn.Ég er mjög ánægður
með fyrstu kynni mín af strákunum í
meistaraflokknum og þeir eru tilbúnir að
æfa meira og skipulegar og að liðið gefi
meira af sér til félagsins. Markmiðið er að
skapa meiri liðsheild karlamegin en verið
hefur,“ segir Freyr ákveðið.
Þolinmæði og vinnusemi nauðsynleg
karlamegin
„Ég finn traust hjá félaginu en ég hefði
ekki farið í þetta starf sem aðstoðarþjálf-
ari nema til þess að hafa mikið að segja
og koma skoðunum mínum á framfæri.
Við Kristján erum mjög ólíkir en sam-
starf okkar fer mjög vel af stað og ég
vonast til að við getum nýtt kosti hvors
annars til að byggja upp nýtt iið að Hlíð-
arenda fyrir næsta tímabil. Vinna þarf að
markvissri uppbyggingu hjá karlaliðinu,
það þarf að sanna sig aftur meðal þeirra
bestu. Uppbygging er víðtækt orð, en það
þýðir ekki endilega að Valur eigi að vera
með 11 uppalda Valsara, heidur þurfum
Freyr með Lárusi Ógumudssyni
föður Dríru Maríu á góðri stund á
herrakvöldi Vals 2010.
við að byggja upp ákveðinn æfingafasa
til þess að hægt sé að ætlast til að leik-
menn nái árangri og liðið þarf að setja
sér raunhæf markmið. Auðvitað setur lið-
ið sér háleit markmið þótt ekki sé raun-
hæft að gera strax ráð fyrir titlum, þótt
það geti vissulega gerst. Fyrst þarf að
búa til ákveðið umhverfi og liðsheild og
á næstu árum getum við gert kröfu um
titla. Mikilvægast árið 2011 er að Valur
geti teflt fram góðu fótboltaliði sem iegg-
ur sig fram og spilar fallegan fótbolta
sem nær eins góðum árangri og hægt er
þá þarf allt að haldast í hendur, allt frá
þjálfurum, leikmönnum, stjómin þarf að
vera þolinmóð, gefa af sér og vera sýni-
leg og stuðningsmenn þurfa að fara að
stíga upp og hjálpa upp við að gera þenn-
an frábæra heimvöll að raunverulegri
heimavallagryfju. Leikmenn hafa nefnt
að þeir upplifi ekki heimavöllinn sem
heimavöll. Hinn almenni Valsari þarf að
láta heyra í sér f stúkunni og vera hvetj-
andi og síðan þarf liðið einfaldlega að
fara að vinna fleiri heimaleiki, þá ætti að
vera auðvelt að fylla stúkuna í hverri
umferð,“ segir Freyr einlægur að vanda.
Betri tengsl við stuðningsmenn og
„Ég vil skora á stuðningsmenn að mæta á
völlinn og sýna svolitla þolinmæði og
líta á það jákvæða sem er í gangi og
hætta að hugsa um fortíðina, sérstaklega
síðustu tvö ár, iíta fram á veginn og gefa
af sér til leikmanna. Ég vil efla tengsl
leikmanna við stuðningsmenn og vil að
almennir Valsarar geti skyggnst inn í
starfið. Strákarnir þurfa líka að verða
sýnilegri í félaginu, t.d. þegar handbolta-
liðin og körfuboltaliðin okkar eru að
spila mikilvæga leiki. Að sjálfsögðu
þurfa leikmenn að vera sýnilegri í yngri
flokkunum þannig að ungu iðkendumir
fái að kynnast fyrirmyndunum sínum
svipað og við höfum verið að gera í
kvennafótboitanum þar sem stelpurnar
eru miklar fyrirmyndir yngri iðkenda og
hafa gefið sér tíma í slfkt. Nú er tíminn
til að horfa fram á veginn með jákvæðni
og vinnusemi að Ieiðarljósi,“ segir Freyr
sannfærandi.
Þórður Jensson og Freyr með
Islandsmeistarabikarinn 2009.
Starfið í kvennaflokkum Vals í
fremstu röð í heiminum
„Ég tel að yngri flokka starfið í kvenna-
fótboltanum hjá Val hafi undanfarin ár
verið í fremstu röð í heiminum, ekki bara
í Evrópu og þjáifunin sem stelpurnar
okkar hafa fengið hefur verið í fremstu
röð og við erum einnig að uppskera ríku-
lega. Sem dæmi má nefna þá unnu stelp-
urnar í 3. flokki öruggan sigur á sterku
móti í Danmörku í sumar, Dana Cup. Á
hverju einasta ári erum við að fá tilbúna
leikmenn úr yngri flokkunum upp í
meistaraflokk, t.d. Dagnýju Brynjarsdótt-
ur og Thelmu Björk Einarsdóttur sem
komu beint úr yngri flokkunum inn í lið-
ið hjá okkur og um leið í landsliðið. Það
er ágætt að það komi fram að fyrir ungar
stelpur í Val tekur iengri tíma að komast
inn í aðalliðið en hjá öðrum liðum af því
að gæðin þar eru meiri en almennt geng-
ur og gerist en ef stelpurnar sýna þolin-
mæði, vinnusemi og læra af þeim sem
eru fyrir þá eru þær líka tilbúnar þegar
þær komast í liðið og ná strax árangri.
Aðalatriðið er að þær séu þolinmóðar og
tilbúnar þegar tækifærið kemur. Framtíð-
arsýnin er að fá a.m.k. tvo hágæða leik-
menn í aðalliðið árlega úr yngri flokkun-
um,“ segir Freyr ákveðið.
Valsblaðið þakkar Frey fyrir að veita
lesendum innsýn í hugarheim þjálfarans
en það er Ijóst að hann gerir miklar kröf-
ur til sín og einnig eru miklar væntingar
bundnar við starf hans hjá félaginu og að
lokum óskar Valsblaðið honum velfam-
aðar í störfum sínum.
Valsblaðið 2010
37